Hugur - 01.01.2015, Blaðsíða 83
Efi, skynsemi og kartesísk endurhæfing 83
þurfi að hafa góðar eðlisgáfur eða þá kennslu viturs manns, bæði til þess
að losa sig undan röngum kenningum sem hugur hans er fullur af, og til
að byggja fyrsta grundvöll5 traustrar þekkingar og uppgötva allar leiðir
sem hann getur farið til að koma þekkingu sinni upp á hæsta stig sem
hún getur mögulega náð. [HR I:305]
Descartes virðist hafa haldið að hans eigin upplýsing hafi verið afsprengi góðra
eðlisgáfna, en þegar hann var orðinn einn af hinum vitru, var hann fús til að
leiðbeina öðrum. Leiðbeiningarnar sem hann notar eru rökræðubundnar en þær
eru ætlaðar til endurhæfingar frekar en til útskýringar.
Skotspónn endurhæfingar Descartesar er „viðjar fordómanna“, sjúkt ástand
hugsunarinnar sem manninum er, samkvæmt Descartes, eðlilegt að lenda í. Til að
skilja endurhæfinguna þurfum við að skilja þetta ástand og rætur þess. Greining
Descartesar er í stuttu máli eftirfarandi:6
Við fæðingu erum við öll gædd sálargáfum skynjunar, minnis, ímyndunarafls
og skynsemi, virðist hann halda; en meðan skynjunin starfar af fullum krafti frá
byrjun, þá er skynsemin frumstæð og veikburða meðan við erum börn.
Í bernsku er skynsemin einmitt aðeins virk þegar hún er „örvuð [impulsi] af
skynjuninni“: Þegar við stöndum frammi fyrir mergð skynjana eins og ánægju og
sársauka, hungurs og þorsta, hita og kulda, bragðs, áferðar og lyktar, getum við
skilið með skynseminni „efni sem er útþanið að lengd, breidd og dýpt og hinir
ýmsu hlutar þess hafa ýmsa lögun og hreyfingu og valda skynjunum sem við
höfum af litum, lykt, sársauka o.s.frv.“ (Lögmál II, 1: HR I:254). En vegna þess að
skynsemin er í fyrstu aðeins virk í nánu sambandi við skynjunina og vegna þess
að skynjanir okkar, sem eru mjög tærar7 og lifandi, fanga athygli okkar gersam-
Charles Adam og Pauls Tannery (AT = Oeuvres de Descartes, París: Cerf, 1898–1956), sem staðsetur
þá texta sem þýddir eru, ásamt tilvísun til HR. [Í núverandi íslenskri gerð er auk þess stuðst við
útgefnar íslenskar þýðingar á verkum Descartes, Orðræðu um aðferð og Hugleiðingum um frum-
speki (OA = René Descartes, Orðræða um aðferð, þýð. Magnús G. Jónsson, Reykjavík: Hið íslenska
bókmenntafélag, 1991; HF = René Descartes, Hugleiðingar um frumspeki, þýð. Þorsteinn Gylfason,
Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag, 2001).]
5 [Descartes talar á latínu um fundamentum (grundvöll, undirstöðu; e. foundation) þekkingarinnar
en seinna um principia (sjá sér í lagi IV. kafla hér á eftir). Þegar hann talar um principia (e. pr-
inciples), virðist hann hafa í huga þær sálargáfur sem þekking okkar getur verið reist á, nefnilega
skynjun og skynsemi. „Grundvöllurinn“ svokallaði samanstendur m.a. af þessum principia og
Descartes virðist beina athygli sinni að þeim frekar en t.d. frumforsendum eða frumreglum.
Principia er hér á eftir þýtt sem rætur, uppsprettur eða sálargáfur, eftir atvikum, en undantekning
er heiti bókarinnar Principia philosophiae (1644) sem er hér þýtt sem Lögmál heimspekinnar.]
6 Raunar er greining Descartesar ekki ein eða ótvíræð. Sú greining sem hér fylgir er tekin saman
upp úr ýmsu sem Descartes segir hér og hvar, einkum þó á eftirfarandi stöðum: Hugleiðingar I
(einkum HR I:117–118) og III (einkum HR I:160–161); Lögmál (I, 70–71; „Svör við andmælum VI“,
9–10); Leitin (einkum HR I:311–312).
7 [Descartes notar latnesku lýsingarorðin clarus og distinctus sem íðorð er lýsa tilteknum hug-
myndum eða skynjunum. Þau eru einatt þýdd á ensku sem clear og distinct og hafa stundum verið
þýdd á íslensku sem skýr og greinilegur. Greinarhöfundi finnst að orðin skýr og greinilegur merki
næstum því hið sama á íslensku, en clarus og distinctus hafa ólíkar merkingar á latínu. Hann vill
láta þýða þau hér sem tær og hreinn. Descartes útskýrir oftar en einu sinni að tær (clare) hugmynd
eða skynjun sé ljós – gegnsæ – ekki loðin, á meðan hrein (distincte) hugmynd eða skynjun sé
óblönduð – aðskilin frá utanaðkomandi hugmyndum eða skynjunum. Descartes talar líka um
tærleika og hreinleika sem eiginleika sem hugmyndir og skynjanir geta haft. Lesandinn hafi í huga
Hugur 2015-5.indd 83 5/10/2016 6:45:16 AM