Hugur - 01.01.2016, Side 33

Hugur - 01.01.2016, Side 33
 Heildarsýn 33 og tjáningu annars fólks sem gerir okkur kleift að sjá að það þjáist, er glatt, og svo framvegis.15 Þetta er það sem til dæmis er átt við þegar sagt er að „gleðin skíni úr andliti“ manns. Við lesum gleði hans af andlitinu beint og milliliðalaust, án þess að við þurfum að geta okkur til um hvað sé að gerast innra með honum, eða setja fram og sannreyna tilgátur þar að lútandi. Frá þessu sjónarmiði er sálin ekki dulið fyrirbæri sem leynist innra með manneskjunni og á sér ef til vill aðsetur í ein- hverju tilteknu líffæri líkamans.16 Þvert á móti blasir sálin við þeim sem hafa augu til að sjá. Eða eins og Cavell orðar það, tengsl manns við sál annars eru eins bein og milliliðalaus og við viðföng augans.17 Þegar sálin er ósýnileg er það ekki vegna þess að líkaminn feli sálina heldur þvert á móti vegna þess að honum er eiginlegt að birta hana. Sálin getur verið okkur ósýnileg á sama hátt og eitthvað sem er beint fyrir framan nefið á okkur er okkur ósýnilegt. Ástæður fyrir sálarblindu minni er því ekki að finna í náunganum heldur í afstöðu minni til náungans, þótt „ég forðist málið með því að varpa myrkrinu yfir á hinn“ og reyni þannig að koma mér undan frumábyrgð minni gagnvart öðrum – að viðurkenna mennsku þeirra.18 Samkvæmt þessu er sitthvað að sjá og að sjá; það er röklegur munur á sjónrænni skynjun sem slíkri annars vegar og sjónrænni reynslu sem felur í sér vissa afstöðu til fyrirbærisins hins vegar. Afstaða okkar til fyrirbærisins, hvernig við tengjumst því, hefur áhrif á hvað við sjáum. „Svipblinda“ – vangeta okkar til að sjá teikn- ingu sem mynd af önd eða einstakling sem mannlega sál – sprettur af því að við festum okkur í tiltekinni afstöðu til fyrirbærisins og gerum okkur um leið blind á aðra afstöðu til þess. Er eitthvað rétt eða rangt við það hvernig við „tengjum“ við fyrirbærið? Hér brestur að einhverju leyti samlíkingin milli andar-kanínu-teikn- ingarinnar og sálarinnar. Ólíkt því að geta ekki séð og viðurkennt aðra manneskju sem sál eða persónu, felur andarblinda ekki í sér siðferðilegan og menntunarlegan skort.19 Það er vegna þess að andarblinda gefur ekki eins og sálarblinda til kynna skort á vilja og ábyrgð til að taka fullan þátt í hinu mannlega lífsformi og láta sig líf annarra varða.20 Hér erum við komin að mikilvægu atriði varðandi möguleika okkar á að sjá fólk, náttúrufyrirbæri eða heiminn sem slíkan. Geta okkar til að sjá hvað sem vera skal er háð tengslum okkar við það sem við sjáum, og alveg sérstaklega háð því hvort og í hvaða skilningi við látum okkur annt um það. Þetta er meðal annars ástæðan fyrir því að orðið athygli nær að mörgu leyti vel að fanga þá tegund af „sjón“ sem varðar siðferðilegan skilning. Athygli er sú gjörð að beina huganum að hinu ytra, því sem er annað en maður sjálfur – að manneskjum og öðrum lifandi verum, að eiginleikum eins og fegurð eða gæsku, og svo framvegis. Þótt athygli sé vissulega misjöfn að gæðum og geti á stundum verið hlutlaus og 15 Í efnisgrein 185 í Philosophical Investigations talar Wittgenstein um „náttúruleg viðbrögð“ persónu við bendingu annars og í efnisgrein 415 segir hann, „við erum í raun að ræða um náttúrufræði manna“ (e. the natural history of human beings). 16 René Descartes áleit, svo dæmi sé nefnt, að aðsetur sálarinnar væri í heilaköngli, sjá rit hans Les passions de l ’âme Descartes 1679. 17 Sjá umræðu Cavells í The Claim of Reason, s. 268. 18 Cavell 1982: 269. 19 Cavell talar um svipblindu hvað varðar annað fólk bæði sem ólæsi og menntunarskort. Sjá Cavell 1982: 369. 20 Sparti 2005. Hugur 2017-6.indd 33 8/8/2017 5:53:18 PM
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.