Hugur - 01.01.2016, Page 73

Hugur - 01.01.2016, Page 73
 Merking og tilgangur heimspekikerfa 73 og óvirkum óendanleika og góðum og virkum sem gerir Páli kleift að hugsa merkingu merkingarleysisins, einingu þessara andstæðna. Hegel útskýrir það í Rökfræði sinni að óendanleikann sé hægt að hugsa sem möguleikann til að halda endalaust áfram, eins og í talnarunu þar sem alltaf er hægt að bæta einni tölu við.19 Í augum Hegels er hér ekki um raunverulegan óendanleika að ræða vegna þess að talnarunan er alltaf endanleg. Sama hversu lengi við höldum áfram, eftir sem áður höfum við alltaf bara safnað saman svo og svo mörgum tölum og stígum aldrei yfir hin ósýnilegu mörk sem greina hið óendanlega frá hinu endanlega. Hinn virki og góði óendanleiki verður þá að vera óendanlegur í sjálfum sér en ekki bara í einhverri ímyndaðri framtíð, þegar búið er að bæta einum við enda- laust. Hann er þá ekki einskær möguleiki heldur raunveruleiki og þannig virkur óendanleiki. Ef um er að ræða talnarunu þá er það talnaruna sem inniheldur óendanlega margar tölur, þar með talið allar óendanlegar talnarunur í óvirka skilningnum. Hinn virki óendanleiki ber, eins og Páll segir, „í sér fullkomnun sína“20, þ.e. fullkomnun sína sem óendanleika, og „er ekki afmarkaður af neinum öðrum veruleika“21 eins og hin óendanlega talnaruna er afmörkuð af veruleikan- um þar sem hún getur haldið endalaust áfram, sem hlýtur þá að vera virkur óend- anleiki. Þannig tengir Páll hugmyndina um virka óendanleikann við hugmyndina um merkingu. Merkingin er eins og óvirki óendanleikinn aðeins höndlanleg í af- mörkun sinni. En hún er háð hinum virka óendanleika sem afmarkar hana. Hinn virki óendanleiki er þá eins og merking merkingarinnar, það sem gerir merk- ingunni kleift að afmarkast sem merking, undantekningin sem sannar regluna. Askja í meðförum Páls er tákn um þess konar virkan óendanleika, enda birtist hún honum sem hinn algeri annarleiki þeirra merkingarkerfa sem við mennirnir höfum komið okkur upp. Þannig má skilja hvers vegna hið óskiljanlega hefur svona mikla merkingu fyrir okkur: það er vegna þess að það er í vissum skilningi lykillinn að merkingunni og uppspretta hennar. Það er, eins og hið góða í frum- myndakenningu Platons, frummynd frummyndanna eða sannleikur sannleikans. Kerfi Hegels er þannig innblástur fyrir kerfissmíði Páls á þrenna ólíka vegu. Í fyrsta lagi er Páll innblásinn af heildarhyggju Hegels. Fyrir báða tvo er heimspek- in tæki til þess að hugsa heiminn í heild sinni, því það er aðeins í þessari heild sem hann er hinn sanni heimur merkingarinnar. Í öðru lagi er hann innblásinn af heimspeki Hegels að því leyti sem sú heimspeki sýnir fram á mikilvægi andans og merkingarheimsins fyrir okkur mennina. Þannig er hún ágætt móteitur við hvers kyns sjálfdæmishyggju sem boðar að menn geti bara hugsað það sem þeim sýnist og að það þýði ekkert að ræða um það, heldur sé það eina rétta að sýna ólíkum skoðunum virðingu. Í þriðja lagi hugsar Páll í anda Hegels merkinguna og heildina í einingu sinni við andstæðu sína, hið óskiljanlega. Þannig minnir 19 Sjá Hegel 1812/1986: 149–173 og 260–371. Ég fylgi nokkurn veginn túlkun Alains Badiou (sjá Bad- iou 1988: 181–190). Badiou telur reyndar að Hegel takist ekki að sýna fram á tilvist virks megind- legs óendanleika innan kerfis síns eins og í dæminu sem ég tek hér. Það skiptir þó ekki öllu máli hér, því Páll virðist eingöngu hugsa um óendanleikann sem eigindlegan: helsta – kannski eina – dæmið hans um óendanleika er guðdómurinn, sem hann skilgreinir eigindlega. 20 Páll Skúlason 2015: 71. 21 Páll Skúlason 2015: 71. Hugur 2017-6.indd 73 8/8/2017 5:53:29 PM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.