Hugur - 01.01.2016, Page 99
Rifin klæði Soffíu 99
Vitsmunir og tilfinningar: Heimspeki aftengd og endurtengd líkama
Hrútskýring felst í því að karl útskýri eitthvað fyrir konu sem hann hefur hugsan-
lega ekki meiri þekkingu á en hún, en hann talar í þeirri vissu og með þeim hætti
að hann viti samt meira um efnið en viðmælandinn.30 Verstar eru hrútskýringar
þegar efnið lýtur að einhverju sem er nátengdara lífi og reynslu kvenna. Þá er
verið að lesa yfir Heimspeki. Það má kalla það hrútskýringu af æðri, fræðilegri
gráðu að þagga og breiða yfir líkamlega þætti í Heimspeki og einskorða hana við
sértæka visku. Sýnu verra er samt að það fyrirbyggir næmi á fínlegri tóna tilfinn-
inga í samræðu þeirra Bóethíusar og Heimspeki. Viðhorf til Soffíu í kristnum
kenningum hafa sömu tilhneigingu með því að upphefja hana og samsama hinu
kristilega logos. Eftir því sem leið á miðaldir fóru margbreytilegri áherslur að birt-
ast í túlkunum á Soffíu kristninnar. Bovo ábóti af Corvey benti strax á 9. og 10.
öld á heiðna þætti í Huggun heimspekinnar sem hafði ekki verið getið í túlkunum
verksins undir áhrifum platonsk-kristilegrar heimsmyndar.31 Söguleg staðsetn-
ing Bóethíusar er einmitt tímabil umskipta frá heiðnum viðhorfum til platonsk-
kristilegrar heimssýnar og því var ekki nema eðlilegt að benda á augljós heiðin
minni í Huggun heimspekinnar sem eru á skjön við kristilegar kenningar. Samt er
eins og fræðimenn samtímans, sem sérhæfa sig í þessu umbreytingatímabili sem
Bóethíus var uppi á, séu lítt vakandi fyrir fornum merkingum á skynrænum og
tilfinningalegum víddum sophia í ástundun Heimspeki, en þess sjást lítil merki í
greinasafninu The Companion to Boethius in the Middle Ages.32
Soffía kemur fram sem viskugyðja innan kristninnar strax í hinni gnóstísku
hefð frumkristni.33 Soffía hefur verið viðurkennd innan trúarlegrar heimspeki,
einkum innan dulspekihefðarinnar, en átt erfitt uppdráttar í mótmælendahefð
kristni. Að dómi Hildegard af Bingen (1098–1179) var Soffía kosmísk vera og Jane
Leade (1624–1705) var 17. aldar dulspekingur sem skrifaði um sýnir og samræður
við „Meyna Soffíu“ sem birti henni andleg öfl að verki í alheiminum í anda þýska
dulspekingsins Jakobs Böhme (1575–1624).34 Soffía lifði einnig af innan kabbal-
ísku dulspekihefðarinnar í gyðingdómi og meðal alkemistanna var litið á Soffíu
sem anima mundi eða sál heimsins. Á öndverðri 20. öld hélt Carl Gustav Jung því
fram, á grundvelli andlegrar reynslu sem hafði með Soffíu að gera, að mikilvæg-
asta andlega verkefni aldarinnar væri að muna hana.35 Hin kristilega hugmynd
um Guð, sem væri í upplausn á okkar tímum, er samkvæmt Jung ófullkomin og í
ójafnvægi án Soffíu. Soffía og Guð eru þess vegna einhvers konar kynjamismunur
sem allt líf flæðir út frá. Fjallað er um Soffíu sem „spekina“ í Orðskviðum Gamla
Testamentisins og þar (8: 22–31) er einmitt talað um að hún hafi verið sköpuð á
30 Hrútskýring er íslenskun á enska orðinu „mansplaining“. Eftir því sem ég best veit kom Hall-
grímur Helgason fram með þessa íslenskun á hugtakinu.
31 Nash-Marshall 2012: 178.
32 Kaylor og Phillips (ritstj.) 2012.
33 Sbr. hið gnóstíska rit Pistis Sophia sem fannst á 18. öld.
34 Smith 1976.
35 Jung 2009.
Hugur 2017-6.indd 99 8/8/2017 5:53:38 PM