Hugur - 01.01.2016, Page 100

Hugur - 01.01.2016, Page 100
100 Sigríður Þorgeirsdóttir undan öllu öðru og að hún hafi verið með Guði í ráðum, við hlið hans við sköpun heimsins.36 Þó svo að Heimspeki í texta Bóethíusar og Soffía dulspekihefðanna séu ekki ein og sama veran skarast þær engu að síður, og einnig í verki Bóethíusar vegna þess að það er skrifað á sögulegum tíma þar sem kristin og forngrísk minni takast á. Menningarsagan býr yfir fjölda minna sem draga fram líkamlegar og tilfinninga- legar hliðar Heimspeki sem hafa með visku lífsins að gera. Það er samt ekki fyrr en á allra síðustu tímum sem túlkendur hafa farið að gefa þessum þáttum í mynd Heimspeki nánari gaum. Slíkar nálganir ganga einmitt út frá því að greina verði Heimspeki í ljósi kynjamismunar og líkamleika. Það hefur ekki með umsnúning á hinu andlega og líkamlega að gera, heldur fyllri mynd af mannverunni sem heild beggja þátta. Í bók sinni um Líkama Soffíu ræðir Annegret Stopczyk-Pfundstein Huggun heimspekinnar og bendir einmitt á það að Heimspeki kennir Bóethíusi að aðgreina ekki sál og líkama, og hjálpar honum við að öðlast líkamlega visku.37 Samkvæmt Stopczyk-Pfundstein kennir Heimspeki Bóethíusi hvernig hann geti „sokkið niður í eigin líkama, til þess að tendra ‘innra ljós’ eða visku sem geti orðið hans eigin“.38 Það er einmitt þetta atriði sem ég hef leitast við að draga skýrar fram í túlkun minni á Heimspeki. Það er birtingarmynd líkamlegrar visku sem getur af sér dýpri heimspekilega hugsun og dómgreind. Líkamleg heimspekileg viska er tilfinningahlaðin. Hinn fangelsaði og dauðadæmdi Bóethíus örvæntir. Í upphafssenu bókarinnar grætur hann.39 Hann fílósóferar í erfiðu tilfinningalegu ástandi sem hann reynir að láta ekki yfirbuga sig. Eitt lag þessa marglaga texta tilheyrir þeirri hefð miðaldaspeki sem hverfist einmitt um umhyggju fyrir sálinni. Steinar Örn Atlason fjallar um það í grein sinni um Huggun heimspekinnar að ástundun heimspeki í texta Bóethíusar sé einmitt „form sálfræðimeðferðar“ og sé einnig dæmi um „heimspeki sem lífsmáta“.40 Öll hugsun er líkamleg vegna þess að hugurinn er í líkama. Hugsun og tilf- inningar eru samofnar vegna þess að tilfinningar hafa vitsmunalegt inntak. Þetta eru staðreyndir sem hafa mikið verið rannsakaðar innan hugarfræði samtímans en þessi verufræði vitsmuna- og vitundarlífsins eru ekki til umfjöllunar hér. Í Huggun heimspekinnar höfum við fyrir sjónum hvernig tilfinningar og kenndir eru hluti af heimspekilegri hugleiðingu þannig að ekki fer milli mála. Það er líkaminn sem geymir minningar alls þess sem við höfum reynt og lifað, þekk- ingu okkar, visku og skilning á hlutunum. Skynbragð okkar á hluti og tilfinning 36 Svo virðist sem það sé venja að þýða nafn Soffíu í Orðskviðunum sem speki (með litlum staf á íslensku,) og vísa til hennar í kvenkyni og tala um „hana“. Á ensku og þýsku er hún þýdd sem „wisdom“ og sem „Weisheit“. Það má velta fyrir sér í ljósi Soffíufræða, sem hafa vaxið innan bibl- íufræða á undanförnum áratugum, hvort þessar þýðingar séu í anda hvorugkynvæðingar Soffíu og hvort ástæða væri til að tala um Soffíu fremur en speki. Hugsanlega er það í anda mótmælenda- hefðar að vilja ekki upphefja heiðna gyðju og ala á gyðjutrú. 37 Stopczyk-Pfundstein 2003: 222. 38 Sama rit: 222. 39 Boethius 1982: 36. 40 Steinar Örn Atlason 2010: 143–144. Steinar Örn túlkar ástundun heimspekinnar sem „andlegar æfingar“ í anda heimspeki Pierres Hadot og hugmynda Michels Foucault um umhyggju fyrir sálinni. Hugur 2017-6.indd 100 8/8/2017 5:53:38 PM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.