Hugur - 01.01.2016, Page 108

Hugur - 01.01.2016, Page 108
108 Sigrún Inga Hrólfsdóttir Frumspeki Innan heimspekinnar eru kenningar um það sem er til, í hinum dýpsta og sann- asta skilningi, kallaðar frumspeki eða hin fyrsta speki,2 rétt einsog Aristóteles kallaði þau fræði sem fjölluðu um frumorsakir þess sem er, fyrstu heimspeki eða πρώτη φιλοσοφία. Samkvæmt Aristótelesi teljast efni, form, uppspretta hreyf- ingar (eða aflvaki) og tilgangur, til frumorsaka.3 Hlutmiðaðir verufræðingar vilja endurvekja kennilega frumspeki (e. speculative metaphysics)4 og taka hugmyndir Aristótelesar aftur til skoðunar að því leyti að þeir freista þess að fjalla um og skilja hver aflvakinn sé og nýta til þess hugmyndir um efni og form þess eða birtingarmyndir. Í upphafi bókarinnar um frumspekina segir Aristóteles að þekkingarþrá sé öll- um mönnum í blóð borin og það sé til marks um þessa þrá að við unnum skiln- ingarvitum okkar, „við unnum þeim þeirra sjálfra vegna, óháð allri nytsemi, og einkum sjóninni“.5 Aristóteles gerir í framhaldinu grein fyrir þeim hugtökum og skilgreiningum sem hann byggir á, því „hann vill henda reiður á viðfangsefn- inu með því að útskýra orðin sem við beitum til að tala um það“.6 En orð megna þó ekki að skilgreina allt sem er, og við skynjum heiminn áður en við getum gert grein fyrir honum með rökrænum hætti. Máli sínu til stuðnings vísa heimspekingarnir sem aðhyllast hlutmiðaða verufræði meðal annars til skammtafræði og forvitnilegra uppgötvana á því sviði, en einnig til listsköpunar. Timothy Morton, einn af hinum hlutmiðuðu veru- fræðingum telur að myndlist sé rannsókn á orsakasamhengi og að hlutmiðaðir verufræðingar sjái samhljóm með hinni mótsagnakenndu hegðun smæstu ein- inga alheimsins og þeirri aðferðafræði listarinnar að skoða hlutina í samhengi sínu á forsendum fagurfræði og skynjunar, og að rannsaka þá rétt einsog vísindin, en búa þar fyrir utan yfir frelsi til ákveðinnar órökvísi, ef svo mætti segja. Rökvísi sem er á sviði skynjunar eða öllu heldur skynvísi sem er óstaðbundin, ótímasett, óefniskennd og skapandi. Öreindir virðast eiga í samskiptum á þessum forsend- um, en þær skynja hver aðra og mæla út og túlka á fagurfræðilegan hátt. Milli þeirra ríkir frumspekileg aðlöðun. Því vilja hlutmiðaðir verufræðingar meina að hlutir skynji hver annan og eigi í samskiptum á þeim grunni og þannig eigi ævin- týrið sér stað – orsakasamhengi hlutanna. Þessi virkni samskipta á sviði skynjunar á sér stað út í gegnum alla veruna, frá öreindum til sólkerfa og hvarvetna þar á milli. Þess vegna er hin fyrsta speki, eða frumspeki, fagurfræði. 2 Frumspeki er íslenska orðið yfir hugtakið metaphysics, sem vísar til þess að þegar rit Aristótelesar voru gefin út á fyrstu öld fyrir Krist, var ritunum um frumspeki gefinn titillinn ta meta ta physika sem þýðir beinlínis „bækurnar á eftir eðlisfræðinni“. Aristóteles nefndi þó þessi fræði sjálfur „hina fyrstu speki“ (gr. he prote filosofia) og þaðan er íslenska orðið frumspeki fengið. 3 Svavar Hrafn Svavarsson 1999. 4 Bruno Latour og Graham Harman, nóta á innsíðu bókarinnar Realist Magic, Objects, Ontology, Causality, Timothy Morton 2013: 2. 5 Aristóteles 1999. 6 Sama rit: 23. Hugur 2017-6.indd 108 8/8/2017 5:53:41 PM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.