Hugur - 01.01.2016, Side 118

Hugur - 01.01.2016, Side 118
118 Sigrún Inga Hrólfsdóttir ir listamenn blanda sér í það samtal. Og yfirleitt er um að ræða samtal milli hluta, og hluta og sjálfsvera (sem eru líka hlutir). Sú yfirlýsing hlutmiðaðrar verufræði að hlutir séu til jafnt, eða með öðrum orðum, að ekki er möguleiki að skilgreina stig tilvistar, eða annaðhvort eru hlutir til eða ekki, hefur einnig áhrif á þá aðgreiningu sem ríkir milli náttúru og menn- ingar. Það er að segja þá tilhneigingu að telja að hlutir séu á forsendum okkar mannfólksins, sem er auðvitað mikill misskilningur. Þetta er hin stóra gagnrýni á mannmiðjukenningar, sem fylgjendur hlutmiðaðrar verufræði og kennilegs raunsæis freista þess að opna umræðu um. Hin fjölbreyttu skilgreinandi tæki manna raða hlutum og mikilvægi þeirra í samhengi við þá sjálfa og það hefur komið jarðarbúum í ógöngur í vistfræðilegum skilningi. Ýmsir fræðimenn telja að runnið hafi upp nýtt jarðsögulegt skeið, mannöld (e. anthropocene),35 vegna þess að tegundin hefur haft slík áhrif á lífríkið að talað er um jarðsöguleg skil. Hið opinbera skeið sem nú ríkir er nútími (e. holoscene eða recent holoscene sem hófst fyrir 11.700 árum, er síðustu ísöld (e. pleistocene) lauk. En æ fleiri hallast að því að mannöldin sé upp runnin. Manninum og öðrum verum stafar mikil ógn af loftslagsbreytingum og þeim áhrifum sem hækkun hitastigs hefur á vistkerfið. Segja má að frá sjónarhóli jarðarinnar sé það mannkynið sem er orðið að vandamáli. Póst-póstmódernismi Hlutmiðuð verufræði hefur átt sérstöku fylgi að fagna meðal myndlistarmanna og þeirra fræðimanna sem fjalla um listsköpun. Merkja má að bæði listamenn og fræðimenn hafi margir tekið þessari nýju heimspeki feginsamlega, sem lið í þróun og framhaldi á kenningum póstmódernismans og þeim hugmyndum sem rekja má til greiningar franska heimspekingsins Jean-François Lyotard á árunum í kringum 1979. En hlutmiðuð verufræði er einnig kærkomið framhald hugmynda fleiri franskra heimspekinga, s.s. Gilles Deleuze og samstarfsmanns hans Félix Guattari, sem gáfu saman út tímamótaverkið Þúsund flekar (Mille plateaux) árið 1980, þar sem þeir kynntu til sögunnar hugtakið rísóm (e. rhizome), sem tæki til þess að skýra hvernig hugmyndir hríslast um og hvernig rætur liggja djúpt á milli margvíslegra og ólíkra hugtaka sem eru þó tengd.36 Það má segja að sú hug- myndafræði endurspegli að einhverju leyti vinnuaðferðir margra samtímalista- manna, en greining og framsetning hugtaksins hafi einnig haft gríðarleg áhrif og að það sé dæmi um gagnvirkni listar og heimspeki. Ef til vill er fullmikil ein- földun að segja að hlutmiðuðu verufræðingarnir Graham Harman og Timothy Morton hafi yfirtekið þetta hugtak og víkkað það út til mengis alls sem er, en það er þó í einhverjum skilningi raunin. Myndlist tjáir það sem er handan tungumálsins. Í myndlist er efni léður andi 35 Samanber ísöld og bronsöld. „Mannöld“ hefur ekki verið opinberlega lýst yfir af þar til bærum stofnunum. 36 Deleuze og Guattari 2004; Deleuze og Guattari 2002. Hugur 2017-6.indd 118 8/8/2017 5:53:44 PM
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.