Hugur - 01.01.2016, Page 127

Hugur - 01.01.2016, Page 127
 Rökgreiningarheimspeki sem gagnrýnistól 127 endanna svo þeir geti tekist á við umdeildar spurningar. Nemendur þurfi að til- einka sér ýmsa hæfni fremur en að láta mata sig, þeir þurfi að geta myndað sér eigin skoðun, áttað sig á því þegar reynt er að leiða þá á villigötur, geta rýnt í eigin skoðanir, komist að óhlutdrægri lausn, komið auga á forsendur sem gengið er út frá og forðast trúgirni. Þessar lýsingar ríma ágætlega við lýsingar á því sem við höfum síðar tekið að kalla gagnrýna hugsun. Vert er að leggja áherslu á að sú sýn sem Russell hafði á þessa gagnrýnu hugsun fól alltaf í sér nauðsyn þess að geta litið ríkjandi samfélagsform gagnrýnum augum. Ágætt dæmi um samfélagsgagnrýni Russells er greinasafn hans Iðjuleysið lofað (e. In praise of idleness), sem kom út 1935. Í greininni sem ritið dregur nafn sitt af færir hann rök fyrir því að rétt væri að stytta vinnudaginn niður í fjórar stundir og gagnrýnir harðlega hvernig hinum vinnandi stéttum sé haldið niðri með allt of mikilli vinnu og hvernig við höfum látið telja okkur trú um að vinnusemi sé dygð. Russell vinnur þar með hugmyndir sem hann hafði sett fram áður, en hann talar þar meðal annars um að óþarflega mikið sé unnið í heiminum og að mikilvægt sé að allir hafi nægan frítíma. Frítími sé nauðsynlegur til að menningarlíf nái að blómstra. Þetta kemur fram í mörgum verkum hans, ekki síst frá þriðja og fjórða áratugnum. Hann leggur áherslu á mikilvægi þess að gera hluti sér til ánægju fremur en fyrir peninga eða vegna nytsemisgildis þeirra. Þannig talar hann um að fólk hafi misst sjónar á því að þekking hafi gildi í sjálfri sér og sé of upptekið af hagrænu gildi menntunar og þekkingar.5 Þetta sé merki um að kunna aðeins að meta efnisleg gæði en hið raunverulega gildi menntunar felist í henni sjálfri, hún verðlauni sig sjálf.6 Í annarri grein, „Modern Homogeneity“, fer Russell hörðum orðum um þá einsleitni skoðana sem hann varð var við í heimsókn sinni til Bandaríkjanna árið 1930 og hann taldi hættulega, enda væru fylgifiskar hennar fordómar gagnvart minnihlutahópum og þjóðernishyggja. Russell beinir spjótum sínum að þjóðern- ishyggju í nokkrum greinum í greinasafninu og segir hana helstu orsök þess sem hann kallar „dýrkun óskynseminnar“ (e. the cult of unreason). Hann lýsir fasisma og kommúnisma sem hættulegum kreddum í greininni „Scylla and Charybdis“, og segir fasismann þá hættulegri af þeim tveimur, enda séu þar bæði aðferðirn- ar og markmiðin ómannúðleg. Um rætur fasisma fjallar hann svo sérstaklega í annarri grein. Russell segist hins vegar sammála meginmarkmiði kommúnisma, stéttlausu samfélagi, en hann geti ekki fellt sig við að eiga að ná markmiðinu fram með byltingu og kjósi heldur friðsamlegar og lýðræðislegar aðferðir. Hann setur þannig fram rök fyrir lýðræðislegum sósíalisma í greininni „The Case for Socialism“. Russell mælir líka fyrir auknu frelsi kvenna sem hann segir t.d. vera þjakaðar af of miklu álagi vegna heimilisverka. Í greininni „Architecture and the Social Order“ mælir hann fyrir breyttu búsetufyrirkomulagi þar sem samrekstur heimila geti gefið konum aukið frelsi frá heimilisstörfum. Í formála greinasafnsins útskýrir Russell hugmyndina sem liggur að baki því að raða þessum greinum saman. Þarna má sjá sýn hans á samfélagsgagnrýni: 5 Russell 1930: 225. 6 Russell 1926. Hugur 2017-6.indd 127 8/8/2017 5:53:46 PM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.