Hugur - 01.01.2016, Side 139
Rökgreiningarheimspeki sem gagnrýnistól 139
Þekkingarfræði í rökgreiningarheimspeki hefur líklega þá mynd í hugum
margra að fjalla fyrst og fremst um staðhæfingar á borð við „A veit að P“ og hvaða
forsendur liggi þeim að baki, með hætti sem oft hefur þótt þurr eða í það minnsta
lítið snúast um mismunandi aðstæður þeirra sem mögulega vita eitthvað eða vita
ekki. Fyrir fáeinum áratugum fór að koma fram gagnrýni á iðkun þekkingarfræði
úr ranni femínista sem var á þann veg að ímynd hinnar vitandi veru væri karllæg
og sömuleiðis hugmyndirnar um hvað ætti að teljast til þekkingar. Einnig fór að
myndast svokölluð sjónarhornsþekkingarfræði sem felur í sér að þeir sem tilheyra
jaðarsettum hópum, hvort sem það er vegna kyns, kynþáttar, stéttar, fötlunar eða
af öðrum ástæðum, hafi vegna reynslu sinnar aðgang að þekkingu sem fulltrúar
ráðandi hópa geti ekki mögulega haft og þetta hefur svo áfram haft áhrif á það
hvernig þekkingarfræði hefur verið stunduð.48 Sjónarhornsþekkingarfræði er
engan veginn sérstakt afsprengi rökgreiningarheimspeki en hún hefur haft sín
áhrif á marga þekkingarfræðinga í þeirri hefð. Einnig hafa komið fram hugtök á
borð við þekkingarlegt óréttlæti og þekkingarleg kúgun þar sem greiningaraðferðir
í þekkingarfræði í rökgreiningarhefðinni eru beinlínis notaðar jafnframt því að
rýnt sé í félagslega stöðu.49
Áhugi hefur vaxið mjög ört á áhrifum ómeðvitaðra fordóma og fyrirframgef-
inna hugmynda á þekkingarmyndun, sem og á því hvernig það sem við teljum
okkur vita dugar oft skammt til að stýra hegðun okkar í samkeppni við áhrif
ýmiss konar ómeðvitaðra hvata eða fordóma. Þarna eru bæði hugspeki og þekk-
ingarfræði notaðar til að reyna að finna út hvað við getum gert til að draga úr
áhrifum ómeðvitaðra fordóma, til dæmis þegar við gerumst óafvitandi sek um
mismunun gagnvart öðrum án þess að vilja það.50 Eins hefur áhugi á notkun
hugspeki og þekkingarfræði sem greiningartækja til að skoða hvað liggur að baki
áróðri farið vaxandi, sem og hvaða áhrif félagslegur ójöfnuður hafi á þá sem fyrir
honum verða.51
Í málspeki hefur farið vaxandi áhugi á félagslegum áhrifum málnotkunar og í
auknum mæli verið rýnt í félagslegt samhengi merkingar og blæbrigða, sem og
hvernig félagslegar aðstæður bæði málnotenda og það samhengi sem orð eru látin
falla í skipta máli. Talsvert hefur verið byggt á eldri kenningum um málgjörðir
(e. speech acts)52 og þær settar í nýrra samhengi, til dæmis í umfjöllun um klám
og áhrifum þess á konur.53 Auk þess hafa átt sér stað áhugaverðar rannsóknir á
merkingu og merkingarsamhengi níðorða og hvernig orðanotkun getur haft áhrif
á hegðun.54
Frumspeki hefur á köflum verið eins konar olnbogabarn, jafnt innan rökgrein-
ingarheimspeki sem í meginlandsheimspeki. Skiptar skoðanir hafa verið um
48 Hér má svo minna á samhljóminn við hugmyndirnar sem Neurath viðraði mörgum áratugum
fyrr.
49 Fricker 2007.
50 Gendler 2008; 2011; Brownstein & Saul 2016.
51 Stanley 2005; 2015.
52 Austin 1962; Searle 1969.
53 Langton 2009.
54 Maitra og McGowan 2012.
Hugur 2017-6.indd 139 8/8/2017 5:53:50 PM