Hugur - 01.01.2016, Síða 141
Rökgreiningarheimspeki sem gagnrýnistól 141
seinni tíð, ekki aðeins á frumspekilegum nótum eins og minnst hefur verið á,
heldur á forsendum vísindaheimspeki.59
Að lokum
Ég nefndi í upphafi þröngar hugmyndir í rökgreiningarhefðinni um hvað ætti
að flokkast sem heimspeki. Á síðustu árum hefur einmitt færst í vöxt að þessar
hugmyndir séu gagnrýndar, jafnframt því sem hinn umræddi virðingarstigi hefur
legið undir ámæli.60 Eins hafa komið fram vaxandi efasemdir um hina miklu
sérhæfingu sem einkennt hefur heimspekina og borið hefur á auknum kröfum
um samvinnu milli sviða. Slík samvinna getur reynst gjöful eins og sjá má af
ýmsum dæmum sem ég hef nefnt þar sem notast er við hugmyndir úr þekk-
ingarfræði, málspeki eða frumspeki til að þróa áfram hugmyndir í siðfræði eða
stjórnmálaheimspeki. Út úr slíkri vinnu getur einmitt komið mjög beitt sam-
félagsgagnrýni sem er þá fengin með aðferðum sem eru einkennandi fyrir rök-
greiningarheimspeki og ekki verður annað sagt en að þær aðferðir gagnist þar
vel. Eins og sjá má af sögu Russells, pósitívistanna og Stebbing, sem voru öll
frumkvöðlar og höfðu mótandi áhrif á þróun rökgreiningarheimspeki, er jafn-
framt full ástæða til að ætla að í þeirri hugsun sem lögð var til grundvallar þegar
rökgreiningarheimspeki var í mótun hafi verið gert ráð fyrir að hún væri meðal
annars notuð sem gagnrýnistól á samfélagið.
Á síðari árum hafa rökgreiningarheimspekingar í vaxandi mæli velt fyrir sér
ýmsum hliðum félagslegs jafnréttis með aðferðum eigin fags. Ef litið er yfir sögu
undanfarinna áratuga verður þó ekki annað sagt en að þar hafi femínískir heim-
spekingar verið í fararbroddi ásamt þeim sem stunda gagnrýni á kynþáttahyggju
og rutt brautina fyrir þann vöxt sem síðar hefur orðið. Aukin samfélagsgagnrýni
innan rökgreiningarheimspeki ætti að vera fagnaðarefni nú á tímum pólitískra
umbrota þar sem þjóðernishyggja og jafnvel fasískar hugmyndir breiðast út meðal
almennings og þjóðarleiðtoga víða um lönd og mikilvægt er fyrir fræðimenn á
öllum sviðum að halda vöku sinni. Reyndar vakna spurningar um hvort aukinn
áhugi heimspekinga á að beita sér fyrir samfélagsumbótum sé tilkominn af vax-
andi áhyggjum af þessari þróun.
Heimildir:
Andreasen, Robin. 2005. The Meaning of ‘Race’: Folk Conceptions and the New
Biology of Race. The Journal of Philosophy 102(2), 94–106.
Appiah, Kwame Anthony. 1985. The Uncompleted Argument: DuBois and the Ill-
usion of Race. Critical Inquiry 12(1), 21–37.
Appiah, Kwame Anthony. 1996. Race, Culture, Identity: Misunderstood Connections.
59 Sjá t.d. Zack 2002; Andreasen 2005. Um þessa sögu vísindaheimspekinnar og nýlegar þreifingar í
átt að aukinni samfélagsgagnrýni í vísindaheimspeki, sjá einnig Fehr og Plaisance 2010 og Carti-
eri og Potochnik 2014.
60 Dotson 2012; Jenkins 2014.
Hugur 2017-6.indd 141 8/8/2017 5:53:50 PM