Hugur - 01.01.2016, Side 171

Hugur - 01.01.2016, Side 171
 Sköpun, kerfi og reynsla 171 ingi, eða viljandi eins og okkur er trúlega tamara að segja. Ef ég mála mynd af fullum ásetningi, þá virðist vera sjálfsagt að annaðhvort lofa mig eða lasta, sem þann geranda sem ber ábyrgð á myndinni. Ef ég hins vegar helli óvart niður málningu, og hún fyrir tilviljun tekur á sig fallega eða athyglisverða mynd, þá er ekki sjálfsagt að lofa mig eða lasta fyrir það. Ástæðan er sú að það er ekki augljóst að ég beri ábyrgð í því tilfelli.12 Það að eitthvað sé gert af ásetningi eða ekki fyrir tilviljun er því nauðsynlegt skilyrði fyrir því að hægt sé að tala um skapandi athöfn. Það leiðir af sér að þegar um skapandi aðgerð er að ræða er alltaf einhver sem er ábyrgur fyrir athöfninni, einhver sem hægt er, réttilega, að lofa eða lasta fyrir útkomu athafnarinnar. Hvað nákvæmlega felst í því að eitthvað sé gert af ásetningi er hins vegar, eins og hægt er að sjá hér að ofan, gáta sem heimspekin er ennþá að fást við. Stokes orðar þetta sem svo að hvað svo sem skapandi hugsun er, þá sé hún „afsprengi ásetnings, sem er ekki tilviljunum háð og hún er P-skapandi“ (í þeim skilningi sem rakinn var hér að ofan). Ekki tilviljunum háð stendur fyrir hverja þá kenningu sem getur útskýrt hegðun sem framkvæmd er af ásetningi.13 P-sköpun er því sú tegund sköpunar sem er viðfang mitt í því sem á eftir fer. Ég fellst á það með Stokes að ásetningur sé ágætt kennimark skapandi hugsunar eða skapandi aðgerða. Gallinn við þessa útleggingu Stokes er að hún er alltof víð. Undir hana falla ótal aðrar tegundir hugsana og athafna, sem við myndum ekki vilja skilgreina sem skapandi. Þetta þarf ekki að koma á óvart þar sem Stokes ætlar sér ekki að bjóða upp á þá aðgreiningu sem þarna þarf til. Skilgreining hans á skapandi hugsun eða skapandi aðgerð heldur því algerlega opnu hvernig við skilgreinum eða útskýrum ásetning, og athafnir sem helgast af ásetningi. Ég mun ekki setja fram skilgreiningu á því hvað það er sem skilur á milli skap- andi hugsunar eða athafnar, og annarra hugsana eða athafna. Það sem ég mun gera í staðinn er að sýna fram á að ákveðin tegund af reynslu sé nauðsynleg til að hægt sé að tala um skapandi hugsun eða hegðun, og að sú tegund af reynslu skilji sumar hugsanir og athafnir frá skapandi hugsun og hegðun. Ég tek áskorun Stokes um að fylla upp í myndina, en ég geng ekki svo langt að setja fram kenn- ingu sem nær yfir allar athafnir sem eru framkvæmdar af ásetningi. Í staðinn sný ég mér að reynsluhugtakinu sem vænlegu tæki til að fást við skapandi hugsun og athafnir. IV. Skapandi hugsun og reynsla af því að gera eitthvað vísvitandi Hvað er sérstakt við skapandi hugsun eða skapandi athöfn? Hvað er það sem gerir það að verkum að við tökum hana út fyrir sviga, eða setjum hana í sérstakan flokk þegar kemur að því að flokka hugsanir eða athafnir? Það er hægt að horfa á þetta frá nokkrum sjónarhornum. Ég hef þegar leitt að því rök að ekki sé vænlegt að líta 12 Stokes 2011: 660–665. 13 Stokes 2011: 659. Stokes byggir hér á Boden á svipaðan hátt og ég hef gert. Skilgreining hans á skapandi hugsun er lengri og nákvæmari en þetta, en þar sem hún er ekki til umfjöllunar hér, þá vísa ég lesandanum á grein hans til að fylla upp í myndina. Hugur 2017-6.indd 171 8/8/2017 5:54:00 PM
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.