Hugur - 01.01.2016, Page 173

Hugur - 01.01.2016, Page 173
 Sköpun, kerfi og reynsla 173 og mismunandi tegundir reynslu séu mikilvægari hugmyndasvæði þegar kemur að því að greina það samhengi sem skapandi hugmynd eða athöfn á sér stað í. Skapandi hugsun eða athöfn hefur þá stöðu í heiminum að innifalin í henni er breyting. Hún hefur því það viðrím (e. direction of fit) að orka á heiminn. Eins og ég rakti að ofan, þá er ekki hvaða nýju hugmynd sem er rétt lýst sem skapandi hugmynd. Það er ekki aðeins það að sumar nýjar hugmyndir séu ein- vörðungu nýjar, en ekki skapandi (eins og þegar hefur verið gerð grein fyrir), heldur einnig það að sumar hugmyndir eru nýjar, en jafnframt svo fjarlægar eða á skjön við það samhengi sem þær eru settar fram í að þær hafa enga merkingu. Við getum tekið sem dæmi nýjar setningar í tungumáli, ef þær hafa ekki áhugaverða merkingu, þá skiptir ekki máli að þær séu nýjar, og málfræðilega réttar. Ástæðan fyrir þessu er sú að skapandi hugsanir og aðgerðir, rétt eins og aðrar hugsanir og aðgerðir, eiga sér stað í ákveðnu samhengi og samhengið ræður miklu um það hvort þær eru nothæfar, og um það hvort þær teljast nýjar eða skapandi. Skapandi hugsun orkar því ekki einvörðungu á heiminn, hún er ekki hvaða breyting sem er, heldur breyting sem sækir merkingu sína í það samhengi sem hún sprettur af og henni er ætlað að hafa áhrif á. Skapandi hugsun eða athöfn orkar þannig ekki einvörðungu á heiminn, heldur er hún líka lýsing á heiminum eins og hann kemur okkur fyrir sjónir. Skapandi hugsun eða athöfn hefur því líka það viðrím að vera lýsing eða tilfærsla frá heimi til hugar. Þetta tvíeðli skapandi hugsunar eða athafnar kemur berlega í ljós þegar við leiðum hugann að þeirri upp- lifun eða reynslu sem fólgin er í því að hugsa skapandi hugsun, eða framkvæma skapandi athöfn. Reynsla af því tagi er auðvitað mismunandi og ekki óbrigðull mælikvarði. Þrátt fyrir það er hægt að sækja í hana vísbendingar um það hvað skapandi hugsun þarf að hafa til að bera. Fyrir það fyrsta tilheyrir þeirri reynslu upplifun á samhengi og aðstæðum sem skapandi hugsun eða athöfn er ætlað að hafa áhrif á. Samofin við þá upplifun er tilfinning fyrir því að vera gerandi, að vera ekki einvörðungu leiksoppur aðstæðna, heldur gerandi og breytandi í þeim aðstæðum sem blasa við. Sú upplifun, að hafa eitthvað með útkomu aðstæðna að gera með því að vera gerandi í þeim, er mikilvæg hér og hún er tvíþætt. Annars vegar sem upplifun á þeim aðstæðum sem um ræðir, og hins vegar sem upplifun á því að setja fram hugsun eða athöfn sem breytir þeim aðstæðum, yfirleitt til hins betra. Hér verður þó ekki lagt mat á hvað felst í betra í þessu samhengi. Við kom- um þar aftur að þeim gildisdómi sem virðist innbyggður í okkar eigin hugmyndir um skapandi hugmyndir. Það samhengi sem skapandi hugsun eða aðgerð fæðist inn í og á að hafa áhrif á, er hér skilið eftir nánast óskilgreint, enda ekki markmið greinarinnar að setja fram skilgreiningu á því. En til þess að gefa einhverja hugmynd verður hér fjallað stuttlega um það. Aðgengi geranda (eða einstaklings) að þessu samhengi er háð ákveðnum þekkingarfræðilegum skilyrðum, við þurfum að hafa skilning á þeim þáttum sem samhengi samanstendur af, til þess að þeir séu hluti af því samhengi þar sem við setjum fram hugsanir okkar eða framkvæmum athafnir. Ég get ekki verið skapandi með því að semja ljóð á kínversku, þar sem ég hef engan skilning á því tungumáli. Hvernig best er að gera grein fyrir þessum þekkingarfræðilegu Hugur 2017-6.indd 173 8/8/2017 5:54:00 PM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.