Úrval - 01.02.1943, Blaðsíða 67
INDVERSKIR LEIÐTOGAR
65
mótstöðu, ef til innrásar kemur,
en aðeins óvirka mótstöðu. Þessi
rödd hefir líka krafizt þess, að
Bretar hverfi þegar í stað úr
landinu og láti Indverja eina
ráða fram úr vandamálum sín-
um.
Frá dögum Búdda hefir eng-
inn Indverji snortið hjörtu þjóð-
ar sinnar eins og Gandhi. I aug-
um f jöldans er hann guð, engu
síður en Búdda, því samkvæmt
trúarbrögðum þeirra, getur
hann endurholdgast, hvenær
sem honum finnst þörf á, til
að vernda börnin sín.
Sterkustu áhrif Gandhis eru
samt ekki fólgin í því, að marg-
ar milljónir trúa á hann sem
Messías. Það er, þvert á móti,
hugrekki hans og auðmýkt í að
afsala. sér geislabaugnum, sem
gerir hann að sönnu mikilmenni.
Eitt atvik, sem ég var sjónar-
vottur að, skýrir mjög vel,
hvers vegna Gandhi hefir svona
mikil áhrif á samlanda sína,
jafnvel okkur, menn hins nýja
tíma.
Það var í júní, árið 1930.
Gandhi var staddur, ásamt hóp
af lærisveinum sínum, „mót-
þróaseggjum", í smáþorpií Bom-
bayhéraði. Snemma, einn morg-
un, kom hópur af þorpsbúum að
kofanum, sem hann hélt til í, og
færðu honum ávexti, blóm og
gildan sjóð. Með mikilli lotningu
lögðu þeir þessar fórnir að fót-
um hans.
„Brunnurinn okkar .. .“ stam-
aði formælandi hópsins, og
vafðist tunga um tönn andspæn-
is hinu rannsakandi augnaráði
Gandhis. „Brunnurinn okkar
hefir verið alveg vatnslaus í
mörg ár. I gær snertu yðar
heilögu fætur jarðveg okkar.
Og sjá! í dag er brunnurinn
fullur af vatni! Við áköllum
þig . .
Lengra komst hann ekki, því
Gandhi greip fram í fyrir hon-
um all stuttlega. „Þið eruð
heimskingjar. Efalaust hefir
þetta verið hreinasta tilviljun.
Ég er engu máttugri fyrir aug-
liti guðs en þið.“ En svo
mildaðist svipur Gandhis og
hann fór að útskýra þetta fyrir
þeim með ljósri dæmisögu.
„Við skulum hugsa okkur, að
hrafn setjist á trjágrein og um
leið fellur tréð. Munduð þið álíta,
að þungi fuglsins hefði orsakað
fall þess? Nei, auðvitað ekki.
Farið þið nú heim, vinir mínir,
og í stað þess að eyða tíman-
um í að hugsa um svona lítil-
fjörlega hluti, þá notið hann til: