Úrval - 01.02.1943, Blaðsíða 97
BEZT VAXNI MAÐUR 1 HEIMI
95.
hnefa annarar handar í lófa
hinnar og lætur síðan handlegg-
ina reyna með sér, hvor geti
hrakið hinn aftur á bak. Ef
þetta er gert reglulega, segir
Atlas, getur það ekki brugðizt,
að það muni þroska alla vöðva
fyrir ofan mitti. Til að styrkja
upphandleggsvöðvann ráðlegg-
ur Atlas mönnum að reyna að
kreppa annan handlegginn, með-
an hinn reynir að halda honum
niðri.
200.000 manns eru á nám-
skeiðum hans og meðal þeirra
eyjaskeggjar á Fiji-eyjum og
Hindúar. — Ferðalangur einn
segir meira að segja frá því, að
hann hafi séð mynd af Atlas í
þorpi einu í Indlandi og var
logandi kerti látið standa fyrir
framan hana öllum stundum.
Atlas leggur mönnum einnig
lífsreglurnar um mataræði.
Hann er andvígur sætum kök-
um, kaffi, tei og áfengi. Hann
vill að menn leggi sér heldur til
munns vatn eða mjólk — hvort
tveggja vel tuggið!
Ef menn, sem koma í skrif-
stofu meistarans, fyllast ekki
lotningu af myndunum — 21
samtals —, sem eru þar á
veggjum móttökuherbergisins,
þá er næstum víst, að þeir munu
fyllast lotningu af honum sjálf-
um. Hann byrjar ávallt samtal
með því að fara úr öllu niður
að mitti. Þegar hann er seztur
við skrifborð sitt, hálfnakinn,
getur samtalið byrjað.
Störf hans eru aðallega í því
fólgin að svara bréfum. Hann
ber næstum trúarlega virðingu
fyrir starfi því, sem hann hefir
tekið sér fyrir hendur, og því
ritar hann löng og nákvæm
bréf til hvers sem óskar frek-
ari upplýsinga. í þeim gefur
hann mönnum heilræði, eins og
þessi: ,,Farið á fætur jafnskjótt
og þér vaknið. Hangsið ekki eða
hikið. Farið á fætur!“ og „Það
er ágæt hressing í því að
stökkva dálitlu vatni á hjarta-
stað sér, þegar farið er á fætur.
Ágætt! “ Hann lýkur ávallt bréf -
um sínum með þessum orðum:
„Með beztu óskum og hlýju
handtaki, Charles Atlas.“
Þegar Atlas er á gangi á götu,
virðist hann ekki neinn krafta-
jötunn, enda lætur hann lítið
yfir sér. Hann reynir að leiða
hjá sér allar deilur og illindi.
Einu sinni reyndi geðstirður
maður að æsa hann til handa-
lögmáls, en Atlas sagði þá: „Ég
er friðsamur maður, herra minn.
Viljið þér gjöra svo vel að láta.