Úrval - 01.02.1943, Side 71
INDVERSKIR LEIÐTOGAR
69
40 kíló á þyngd og afar smávax-
inn. Abdul Kahn er um 110
kíló og allt að því helmingi
hærri. En báðir eru svarnir
óvinir alls einræðis, í hvaða
mynd sem er. Abdul Kahn er þar
að auki einlægur aðdáandi hins
rússneska ráðstjórnarskipulags.
V.
MINNI HLUTA LEIÐTOGI.
Annar leiðtogi múhameðs-
trúarmanna, sem ekki má
gleyma, er Jinnah, forseti Mos-
lem-sambandsins. Hann er eng-
inn vinur þeirra leiðtoga, sem
hér hafa verið nefndir og hann
er andvígur Congressflokknum.
Jinnah vill skiptingu Indlands í
tvö ríki, Hindúa og múhameðs-
trúarmanna, en hann hefir lítið
fylgi, því í flokki hans er að-
eins einn fjórði af trúbræðrum
hans í Indlandi.
Jinnah er sextugur, hár og
grannur með skörp og lýsandi
augu, glæsimenni í klæðaburði,
og fágaður í framkomu. Hann er
framgjarn og nokkuð óbilgjarn
í skoðunum. Málfar hans er
nokkuð ögrandi, en þó viðfeldið.
Hann er lögfræðingur að mennt-
un og hefir unun af því að snúa
á andstæðinga sína í mála-
rekstri.
Jinnah er afskiptalítill um
styrjöldina, því hann er allur i
innanlandsbaráttunni. Þó hann
njóti ekki mikils fylgis, er samt
mikið undir því komið, hvort
hægt verður að fá hann til að
vinna að þjóðlegri einingu Ind-
lands á móti hinum sameigin-
legu utankomandi óvinum.
❖ ♦ ♦
Hinn kvenlegi hæfileiki.
Hæfileikinn til að hlusta með augunum — horfa með hrifn-
ingu á þann, sem talar, þó að eyrun séu lokuð og hugurinn á
ferð og flugi, er algerlega kvenlegur eiginleiki. Guð hefir gætt
konuna þessum hæfileika, svo að hún fái afborið æfilanga sambúð
við sama manninn, án þess að gleyma að brosa.
Frank Case í,,Do Not Disturb".
☆
JþEGAR EIGINMAÐURINN segir: „Ég treysti konunni minm,“
þá ber hann raunverulega traust til hennar. En þegar konan
segir: ,,Ég treysti manninum mínum," þá er það sjálfstraust.
Francis de Croisset í „Our Puppet Show“.