Úrval - 01.02.1943, Qupperneq 108
106
ÚRVAL
ir reikulir í spori af þreytu og
örmagnan. Ekki gat hann mun-
að, hver hafði komið fyrstur.
Það hafði verið dálítið kynlegt
— hann hafði þótzt sannfærður
um, að hann gæti munað það,
en hann gat það ekki. Ef til vill
var það fátæk fjölskylda og
börnin höfðu horft á hann ótta-
slegnu augnaráði. Ef til vill síð-
skeggjaður öldungur með sótt-
hitagljáa í augunum. En eftir
þrjá daga sá hann allt í þoku.
Það var eins og Franz hafði
sagt — þetta voru borgaralegar
sauðkindur — sauðir, sem varð
að reka áfram, miskunnarlaust,
nótt og dag, í áttina til landa-
mæranna. Fólkið kvartaði, og
þegar kvartanirnar urðu of há-
værar, varð að gera ráðstafanir,
en kvartanirnar byrjuðu alltaf
aftur. Hann hafði reynt í fyrstu
að þagga niður í þessu fólki, en
nú voru kvartanir þess honum
ekki til neinna óþæginda lengur.
Og þó voru þeir margir — mjög
margir —, sem aldrei kvörtuðu.
í fyrstu hafði hann haft gam-
an af að veita því athygli, hve
hér var misjafn sauður í mörgu
fé. Hann hafði ekki búizt við
svo ólíkum einstaklingum meðal
hinnar Fordæmdu þjóðar. Hann
hafði geymt í huga sér mynd-
ina af þeim, eins og hún var
jafnan birt í blöðunum. En þeir
voru allt öðru vísi í sjón. Þeir
voru mjög ólíkir myndunum.
Þeir gátu verið háið eða lágir,
grannir eða gildir, svartir á
brún og brá, Ijóshærðir eða
jafnvel rauðhærðir. Það var
sýnilegt, jafnvel gegnum ryk
vegarins, að sumir höfðu verið
ríkir, aðrir fátækir, sumir
hneigðir til hugleiðinga, aðrir til
framkvæmda. Annars varð lít-
ið ráðið af útliti þeirra. Auk
þess var það ekki hlutverk hans.
Hann átti einungis að sjá um
reksturinn.
Ef til vill stakk það fyrst í
augun, hversu þetta fólk var
óbrotið og hversdagslegt. Og þá
var naumast hægt að verjast
þeirri hugsun, hvað þetta fólk
væri að gera hér, svona fjarri
bústöðum sínum og umhverfi.
Hvers vegna var það að þvæl-
ast hér á þessum vegi? Það er
ekki hamingjusamt. En svo
hlaut maður að átta sig. Og
samt leitaði þessi hugsun fram
í algeru trássi við viljann.
Hann hafði séð mjög fáa,
sem hann þekkti. Það var eðli-
legt, hann var ættaður frá suð-
urhluta landsins. Þó hafði hann
séð Villa Schneider — það var