Úrval - 01.02.1943, Side 15

Úrval - 01.02.1943, Side 15
LÆKNIRINN 1 LENNOX 13 vax að mörgu sérstakur í okk- ar hóp. Fötin hans voru óskap- leg, enda þótt þau væru jafnan vel stoppuð og bætt. Og ekki var heldur ættgöfginni fyrir að fara. Móðir hans, horuð ekkja eftir drykkfeldan slæpingja, vann fyrir þeim báðum með því að þvo búðir. Carry jók tekjur þeirra með því að fara á fætur klukkan fimm á morgnana og sendast með mjólk. Þessar sendiferðir ollu því, að hann kom stundum of seint í skólann. Þegar ég lít til baka yfir farinn veg, þá get ég enn séð lítinn, haltan dreng standa í miðri skólastofunni, rjóðan og titrandi, og kennar- ann, kvalasjúkan fant, brosa hæðnislega. „Nú, nú . . . . getur það verið, að þú sért enn of seinn?“ „J-j-j-já, herra.“ ,,Og hvar hefir yðar tign ver- ið? Vafalaust í morgunverðar- boði hjá borgarstjóranum?“ „N-n-ne . . .“ Þegar svona stóð á, fór Carry að stama. Honum var ómögu- legt að koma út úr sér orði. Og allur bekkurinn, með bros kenn- arans sem fyrirmynd, rak upp skellihlátur. Ef Carry hefði verið góður námsmaður, hefði allt farið vel, því að í Skotlandi er þeim fyrir- gefið allt, sem er góðum gáfum gæddur. En enda þótt Carry sæktist dável lesturinn, voru munnlegu prófin honum sann- kallaðar eldraunir. Þetta var móður Carrys mik- ið sorgarefni. Henni var mikið kappsmál, að sonur hennar skaraði fram úr, einkum á sér- stöku sviði. Fátæk, auðmjúk og fyrirlitin, ól hún þá von í brjósti, að henni auðnaðist að sjá'son sinn vígðan prest Skotlancjs- kirkju. Heilaga einfeldni! En móðir Carrys hafði svarið að framkvæma kraftaverkið eða deyja að öðrum kosti! Carry kaus miklu fremur að vera úti á víðavangi, heldur en á bænasamkomum. Hann unni skógunum og heiðunum og öllu, sem lifði þar og hrærðist — honum leið aldrei betur en þá, er hann var að hjúkra einhverju særðu dýri, sem hann faifn á förnum vegi. Hann var einstak- ur snillingur við læknisaðgerðir. Ef satt skal segja, langaði Carry ákaflega mikið til þess að verða læknir. En hlýðnin var samofin hinu milda eðli hans, og þegar hann hóf nám við háskólann, gerðist
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.