Úrval - 01.12.1943, Blaðsíða 15
HVAÐ SKEÐUR VIÐ FALL NAZISMANS?
1,3
Um tvennt munu allir hinir
andstæðu flokkar verða sam-
mála: að berjast gegn sundur-
limun þýzka ríkisins og lang-
varandi hemámi og þó einkum
afskiptum innrásarhersins af
innanlandsmáium.
Hið síðamefnda virðist valda
Churchill allmikium áhyggjum,
þó að „Amgot“ (Hernaðarstjórn
Bandamanna í hemumdum
löndum) láti það ekki raska ró
sinni.. Churchili sagði í ræðu 27.
júní síðastiiðinn, að hann óttað-
ist, að ensk-amerískir „Gau-
Leiters“ (fylkisstjórar) mundu
hafa svipuð áhrif á óvinaþjóðir
Bandamanna, eins og það sem
kalia mætti „Namgot“ (Hern-
aðarstjórn nazista í hernurnd-
um löndum) hefir haft á hinar
hernumdu þjóðir Evrópu. Og
Churchill hefir áreiðaniega rétt
fyrir sér í því.
í Þýzkalandi mun verða al-
menn andstaoa gegn sundur-
limun ríkisins og þeim yfirvöld-
um Bandamanna, sem tekið
hafa að sér hina borgaraiegu
stjórn, sem nazistaflokkurinn
Iiafði áður, en að öðm leyti
munu hinir ýmsu flokkar vera
ósammála. Vér skulum leitast
við að gera oss grein fyrir,
hverjir þessir flokkar og stefn-
ur verða. Það er ekki eins erfitt
og ýmsir vilja vera láta. Því að
átökin munu verða á milli þjóð-
félagsafla, sem vér þekkjum og
vitum nokkum veginn, hvaða
myndir muni taka á sig.
Fyrsta takmark allra eigna-
stétta eða stétta, sem hafa
skapað sér öruggan sess í þjóð-
félaginu, er að varðveita þjóð-
skipulagið og innanlandsfriðinn.
En þetta takmark er annars eðl-
is í þjóðfélagi, sem iifað hefir
tvær styrjaldir, tvær byltingar,
gengishran og hverskpnar fjár-
hagsörðugleika, þar sem öll f jár-
málakerfi eins og þau þekkjast
hjá hinum vestrænu lýðræðis-
þjóðum, hafa brostið og glatað
gildi sínu. Jafnvel á meðal eigna-
stéttanna í Þýzkalandi hefir
andstaðan gegn socialisma mjög
þorrið, einkum meðal yngr-a
fólksins. Þessar stéttir munu
óttast rán og gripdeildir og
hverskonar stjómleysi, og þær
munu leitast við að hafa völdin
í sínum höndum til að varðveita
lög og rétt og bjarga því af
eignum sínum, sem bjargað
verður.
Þær rnunu setja traust sitt á
herinn og munu njóta stuðnings
kirkjunnar, bæði mótmælenda
og kaþólskra, bænda og allra