Úrval - 01.12.1943, Blaðsíða 21
HVAÐ SKEÐUR VIÐ FALL NAZISMANS ?
19
ir hörfað á austurvígstöðvun-
um inn fyrir landamæri sín;
frjálslynd stjórn undir forustu
einhvers óháðs en mikilsmetins
áhrifamanns, hefir boðið Banda-
rnönnum frið og boðizt til að
hverfa á brott með her sinn úr
öllum hemumdu löndunum og
áköf, skefjalaus bylting er í
uppsiglingu. — Hverju svara
Bandamenn ? Kref jast þeir
skilyrðislausrar uppgjafar ?
Það er augljóst, hverjai' af-
leiðingar það hefði. Byltingin
rnundi magnast, og varnir þýzka
hersins mundu, ef til vill eftir
bióðuga bardaga, bresta og her-
ir Bandamanna ryðjast inn í
landið.
Og hvernig mun svo brezkum
og amerískum liðsforingjum,
sem aldir eru upp á skikkanleg-
um borgaralegum heimilum,
takast að ráða við slíka bylt-
ingu?
Hlutverk þeirra er meðal ann-
ars það, að halda uppi lögum
og reglu. Munum vér láta þá
skjóta á forystumenn þeirrar
byitingar, sem vér höfum kom-
ið af stað með stjórnarstefnu
vorri? Hvað munu bandamenn
vorir Rússar segja við því?
Hvað eigum vér að gera við
þær tíu milljónir byltingarsinn-
aðra útlendinga, sem vér erum
komnir til að frelsa? Hve lengi
munum vér hætta á að láta
óbreytta ameríska hermenn
lifa í slíku andrúmslofti ? Er
bylting ekki smitandi?
Ef vér ætlum okkur að koma
á fót lögum og reglum á lýð-
ræðis- og þingræðisgTundvelh,
munum vér þá leita liðsinnis hjá
hinum þýzku liosforingjum og
kveðja þannig til vopna þau öfl,
sem vér neituðum áður að
semja við? Og værum vér þá
ekki orðnir þátttakendur í borg-
arastyrjöld, x andstöðu við þau
öfl, sem vér, með fyrri aðgerð-
um vorum, áttum þátt í að
skapa?
Vandamál þau, sem við blasa,
nú, eru afleiðing hinnar ein-
strengingslegu stefnu vorrar
eða kannske öllu heldur stefnu-
leysis. Vér heyjum styrjöld,
sem í eðli sínu er mannfélags-
bylting, eins og hún væri gamal-
dags valdabarátta á milli þjóða.
Þegar í upphafi styrjaldar-
innar hefðum vér átt að gera
heyrum kunn styrjaldarmark-
mið vor, lýsa því skýrt og af-
dráttarlaust yfir, hvers konar
Þýzkaland, ítalíu og Evrópu
vér kjósum í framtíðinni. Með
ákveðið markmið fyrir augum