Úrval - 01.12.1943, Blaðsíða 88
86
ÚRVAL
140 aura kg., að brezka stjórn-
in er að láta byggja verksmiðju
í Jamaica, sem á að framleiða
2000 smálestir af „fæðu-ölgeri“
á ári.
Það sem fyrir Thaysen vakti,
var að nota fæðuölger sitt sem
næringarríka uppbót á lélegu
fæði. Þó að það væri bragðgott
og lystugt, kom Thaysen ekki
til hugar, að „Torula utilis“
væri líklegur til að valda bylt-
ingu í matvælaframleiðslu
heimsins.
En það var einmitt það, sem
ungum kynbótafræðingi, Carl
Lindegren að nafni, datt í hug.
Hann einsetti sér að reyna að
framleiða ýmsar tegundir af öl-
geri, sem að ilm og bragði líktist
algengustu fæðutegundum. —
Hann og kona hans, sem bæði
unnu við St. Louis Washington
háskólann tóku að gera kyn-
bótatilraunir á ölgerlum.
Þegar Lindegren-hjónin voru
nemendur hjá Nobelsverðlauna
erfðafræðingnum T. H. Morgan
í Caltech höfðu þau gert kyn-
bótatilraunir á ávaxtaflugum
(Drosophila), sem eru þrjár
vikur að fæða af sér nýja kyn-
slóð. Ölgerlarnir fæða af sér
nýja kynslóð á 20 mínútum.
Þeir eru venjulega kynlausir,
æxlast við skiptingu. En við sér-
stök skilyrði öðlast þeir frum-
stæð kyneinkenni og tímgast þá
eins og aðrar plöntur með gró-
um. Þau hjónin ræktuðu ölgerla
með gróum, opnuðu grópokana
og víxlfrjóvguðu þau og rækt-
uðu þannig þúsundir af nýjum
ölgerstegundum. Að lokum
fundu þau tegundir, sem höfðu
hin réttu bragð- og ilmein-
kenni.
Félagið Anheuser-Busch hef-
ir nú hafið framleiðslu á þess-
um tegundum í stórum stíl og
nemur framleiðslan milljónum
punda á ári. Aðferðin er þessi:
125 pund af ölgeri er sett í ámu,
sem í eru 28.000 lítrar af vatni,
hálf önnur smálest af óurmu
sírópi (sem ölgerlarnir nærast
á) og ammoníaki (úr köfnunar-
efni þess búa ölgeríarnir til
eggjahvítuefni). Þessari blöndu
er haldið hæfilega heitri og
hrært í henni með þúsund ten-
ingsfetum af lofti á mínútu (að
öðrum kosti mundi ölgerlarnir
breyta sykrinum i alkohol). Á
tólf klukkustundum sextánfald-
ar ölgerillinn þyngd sína og er
þá orðinn að einni smálest af
ilmandi lostæti. Ómatreitt er
ölgerið þurrt, létt og duft-
kennt, ýmist með kjöt-, hnetu-