Úrval - 01.12.1943, Blaðsíða 129
LEYNISTARFSEMI 1 PARÍS
127
svona ítarlegar upplýsingar,“
sagði Chancel, „virðist það vera
óþarfi að ég bæti þar nokkru
við.“
Dómarinn ylgdi sig. „Réttin-
um stendur á sama, hvort þér
játið eða neitið áfram hinu aug-
ljósa sambandi yðar við þetta
glæpsamlega samsæri.“
Ákærandinn reis úr sæti sínu.
„Ég vil bæta nafni herra Chan-
cels við nöfn hinna sakborning-
anna, sem krafist er að dæmdir
verði til dauða.“
„Breytingin er tekin til
greina,“ sagði dómarinn.
Chancel, sem hirti ekki um
það sem fram fór, sneri sér að
okkur. „Afsakið, hvað ég er
seinn að heilsa- ykkur. Þið vitið
öll ástæðuna.“
Klukkan var tvö, þegar dyrn-
ar opnuðust og dómararnir
gengu hátíðlega inn í salinn.
Dómforsetinn kvað upp dóminn:
Kitty, dauðadómur; séra Christ-
ina, dauðadómur; Chancel,
fimm ára þrælkunarvinna; Tiss-
ier, fjögra ára þrælkunarvinna;
ég, þriggja ára þrælkunarvinna.
Ég hefi víst ekki getað leynt
skelfingunni, sem greip mig.
Enda þótt dómur minn væri
vægastur gat ég ekki hugsað
mér að vera þrjú ár í viðbót í
hinu hræðilega fangelsi. Þá
minntist ég dómanna, sem
kveðnir höfðu verið upp yfir
þeim Kitty og séra Christian —
líflátsins — sem hvorugu, að því
er ég bezt veit, tókst að kom-
ast undan.
Kitty tók í höndina á mér.
„Gráttu ekki, Etta. Láttu Þjóð-
verjana ekki sjá að við óvirðum
okkur.“ Ég þrýsti hönd hennar
og kæfði ekkann. Kitty, sem var
dæmd til dauða, var að hug-
hreysta mig!
Aftur vorum við lokaðar inni
í fangavagninum. Okkur var
báðum Ijóst, að þetta myndi
sennilega vera í síðasta skiptið,
sem við hittumst. Ég bugaðist,
lagði höfuð mitt að brjósti Kitty
og grét beizklega. Kitty strauk
hendinni um hár mitt.
„Ég hefði átt að láta þig fara
heim, áður en það var orðið of
seint,“ sagði hún. „Hafðu eng-
ar áhyggjur mín vegna. Einu
sinni var ég afskaplega hrædd
við dauðann; en ég er búinn að
venja mig við tilhugsunina nú
orðið. Milljónir manna munu
hafa látið lífið áður en þessu
stríði lýkur, og eitt dauðsfall í
viðbót skiptir litlu máli — eink-
um þegar þú minnist þess, að
ég beið ekki ósigur -— ég sigraði