Úrval - 01.12.1943, Blaðsíða 11
DAUÐADANS MAlFLUGUNNAR
9
um götuljós stórborga, sem
standa við ár eða vötn víðsveg-
ar um heim. í borgunum við
Missisippi og vötnin í Kanada,
í Genf, á bökkum Genfervatns-
ins og í Bagdad, á bökkum
Tigris breiðir hún gráfölan
hjúp yfir götmnar, sem fýkur
til við andblæ morgunsins.
Það er margt undarlegt um
maifluguna. Hún neytir einskis,
allt frá vöggu til grafar, enda
hefir hún engan mumi til að
nærast með, þótt hún vildi. Hún
kemur í heiminn gædd ákveðnu
magni af lífsorku og dansar
gáskafull um djúp ioftsins, unz
orkuna þrýtur. Þá deyr hún.
Jafn furðuleg er fæðing henn-
ar. f fylling tímans má sjá ótal
skorkvikindi, á stærð við húsa-
flugur,stíga upp frá botni vatns-
ins eða árinnar. Þessi htlu kvik-
indi er í fyrsta skipti að yfir-
gefa heimili sín, þar sem þau
hafa verið í tvö eða þrjú ár.
Þau eru belgmikil, með bústna
fætur, hala til að synda með og
tálkn til að anda með. En þegar
þau eru komin upp á yfirborð-
ið, skeður furðulegt atvik. Húð-
in á hryggnum sprettur í simd-
ur eftir endilöngu; það eru ein-
hver umbrot inni fyrir, og eins
og örskot skýzt upp um rifinu
fleyg og fullsköpuð maífluga,
eins ólík skorkvikindinu, sem
hún spratt upp úr, og páfugl er
ólíkur rottu. Að sumu leyti
jafnvel enn ólíkari, því að fyrir
andartaki síðan andaði hún í
gegnum tálkn, en nú andar hún
að sér fersku vorloftinu, og
mundi samstundis drukkna, ef
hún lenti í vatni.
Þetta nýfædda dýr þenur út
þunna, gagnsæja vængi sína og
fiögrar upp á næstu grein. Þar
fellir hún aftur haminn á fáein-
um mínútum, jafnvel húðina á
vængjimum. Þetta er sérstætt
fyrirbrigði, segja vísindamenn,
því að ekki er vitað, að nokkurt
axmað skordýr skipti um ham
eftir að það hefir fengið vængi.
Svo lyftir hún sér til flugs og
hefur dansinn, sem aðeins dauð-
inn bindur enda á.
En það er langur aðdragandi
að þessu stutta dýrðarskeiði í
ævl maíflugunnar. Litli vatns-
ormurinn, sem gat af sér maí-
fluguna, hefir háð lífsbaráttu
sína í tvö eða þrjú ár innan um
önnur skorkvikindi, sem lifa í
botnfor vatna og tjama. Egg-
inu, sem hann er af sprottinn,
verpti maíflugan fyrir tveim eða