Úrval - 01.12.1943, Blaðsíða 71
Ung móðir.
D AÐ sögulega atvik skeði
árið 1939 í Perú í Suður-
Ameríku, að fimm ára stúlku-
barn eignaðist son. Lesendum til
fróðleiks, skal hér saga stúlk-
unnar sögð eins og læknir henn-
ar, dr. Gerado Sozada, segir í
skýrslu, sem hann gaf um málið.
Samkvæmt fæðingarvottorði,
var Lina Medina, en svo heitir
stúlkan, fædd 23. sept. 1933. —
Hún var áttunda barn af níu
systkinum og í alla staði eins
og önnur börn, þegar hún
fæddist.
En Lina var bráðþroska. —
Þegar hún var 7 mánaða gömul
fór hún að hafa tíðir og héld-
ust þær reglulega úr því. Að
öðru leyti virtist hún eins og
börn eru flest á hennar aldri.
I ágúst 1938, þegar Lina var
tæpra 5 ára, tók móðir hennar
eftir því, að hún fór að verða
föl og lystarlítil, og um sama
leyti tók fyrir tíðirnar, en ekki
var því gefinn gaumur sérstak-
lega, þar sem barnið var ekki
eldra. Líklegt þótti, að um melt-
ingarólag væri að ræða, og fékk
hún ýms lyf samkvæmt því. Á
næstu mánuðum varð lítil breyt-
ing á heilsufari Línu, hún var
lystarlaus og vildi helzt alltaf
sofa. í janúar fór móðirin að
hafa áhyggjur út af því, hve
barnið gildnaði. Leitað var til
skottulæknis, sem fullyrti, að
ekkert væri við þetta að athuga.
Fyrir tilstilli lögreglunnar, sem
fengið hafði upplýsingar um
málið, varð faðirinn þó að fara
með barnið í sjúkrahús til
rannsóknar.
Lina var fyrst athuguð af
þremur læknum, sem komust
að þeirri ótrúlegu niðurstöðu,
að hún væri gengin með í 7
mánuði. Án þess að láta á
nokkru bera létu þeir fleiri
lækna rannsaka stúlkuna. Allt
bar að sama brunni. Á rönt-
genmynd kom í ljós beinagrind
fósturs inni í leginu, svo ekki
varð um villzt, að Lina var
barnshafandi. Nokkrum dögum
áður en Lina skyldi ala barn
sitt var hún flutt í fæðingar-
stofnun, þar sem gerður var á
henni keisaraskurður 14. maí
1939. Barnið, drengur, vóg 2700
grm. og var í alla staði eins og
önnur börn. Ekki var búið að
feðra barnið, þegar læknirinn
gaf skýrslu sína.
— Ljósmæðrablaðið.