Úrval - 01.12.1943, Blaðsíða 128
126
■ORVAL
Þýzkaland. Herforingjarnir
gáfust upp, en þjóðin ekki. Hve
fjölmennir eruð þér í Frakk-
landi? Ein milljón? Það eru 40
milljónir gegn yður!
Ég er prestur, en í þessu stríði
hefi ég verið hermaður, her-
maður, sem ekki hefi gefizt upp.
Ég barðist fyrir meira en hern-
aðarlegum úrslitum í styrjöld
tveggja velda. Ég barðist fyrir
réttlæti. Ég býst ekki við að
finna neitt réttlæti í þessum
dómsal. En ég veit, að guðlegt
réttlæti sigrar að lokum; og
dómur guðs mun verða kveðinn
upp yfir yður, sem nú þykist
vera að dæma okkur."
Síðast var Chancel kallaður
fyrir og ávarpaður sem Corbier.
Hann var ákærður fyrir að vera
í félagi við okkur, enda þótt eina
sönnunargagnið gegn honum
væri aðeins bréfspjald, sem
fannst í íbúð hans, skopmynd
af Foringjanum með áletrun-
inni: „Lifi Frakkland! . . . Niður
með Þjóðverja!“
Því næst krafðist ákærand-
inn, að við yrðum öll dæmd í
nafni Hitlers.
Verjandanum var leyft að
taka tii máls, og dómarinn lýsti
yfir, að hann og félagar hans
ætluðu að draga sig í hlé til þess
að ræða dómsúrskurðinn. Þegar
þeir voru að standa upp, kom
dr. Hager æðandi inn í salinn,
móður og æstur. Hann ræddi við
dómarann og dró skjöl upp úr
tösku sinni.
Dómarinn barði í borðið.
„Rétturinn er settur aftur,“
sagði hann. „Nýjar sannanir
hafa komið fram. Herra Chan-
cel, standið upp!“
Ég dáðist að snarræði Chan-
cels. Hann sat grafkyrr, þó að
nafn hans væri nefnt svo óvænt.
En við hin gengum í gildruna.
Við litum öll til hans.
„Hamingjan góða, herra
Chancel,“ sagði dómarinn. „Ég
sé, að þó að þér hafið gleymt,
hvað þér heitið, þá hafa vinir
yðar ekki gleymt því. Þér skul-
uð hætta þessum gamanleik,
herra Chancel — eða herra Cor-
bier, ef þér óskið heldur. Þér
hafið verið svo ógætinn að skilja
hin ófölsuðu skjöl yðar, ásamt
nokkrum með nafni Corbier,
eftir hjá einum vina yðar, sem
hefir verið svo óheppinn að vera
tekinn fastur. Óskið þér að
draga úr þeirri yfirlýsingu yðar,
að þér þekkið ekki sakborning-
ana og hafið engan þátt átt í
samsæri þeirra?“
„IJr því að þér hafið fengið