Úrval - 01.12.1943, Blaðsíða 84
S2
ÚRVAL
innar. Wilfred bar stóran kross
og framan við hann fluttu veg-
farendur bænir sínar með mikl-
um fjálgleik. En Stefáni og
guðsmönnunum tveim gekk illa
að halda góðum aga í liðinu.
Veðráttan var þeim óhagstæð.
Veturinn var óvenju harður, svo
að hraustir hermenn hefðu
fengið sig fullsadda, hvað þá
böm. Nístandi norðanvindurinn
hvein í trjánum og andvarpaði
þungan eins og börnin í tjöldum
sínum. Og marga nótt blakti
gunnfáni frelsarans yfir köld-
um, hungruðum og grátandi
börnum. — Vegimir voru slæm-
ir og ójafnir, og einu brýrnar
yfir margar straumþungar stór-
ár voru lausir plankar. Eftir
snæbreiðum og gegnum stór-
skóga þrömmuðu börnin áfram.
Þótt stundum hefðu þau nægan
mat, þjáðust þau þó miklu oft-
ar af sulti. Kuldi og hungur
höfðu sjúkdóma og hverskyns
hörmungar í för með sér.
Marga hinna ungu krossbera
fór nú að iðra þess glapræðis,
að hafa lagt út í þessa för. Og
þegar eymdin fór enn vaxandi,
lögðust margir niður við veg-
inn, skjálfandi af ótta og kulda.
Sumir ferðamenn hjálpuðuþeim,
en aðrir rændu þá því litla, sem
þeir áttu, og skildu þá eftir til
að deyja þar drottni sínum.
í öllum þorpum og klaustmm
sem hinir ungu krossfarar fóru
fram hjá, hétu þeir á menn til
hjálpar, og sjaldan að ófjmir-
synju. Guðhræddir gáfu þeim
allt, sem þeir máttu og lofuðu
að fylgja þeim með bænum sín-
um. Þeir voru sannfærðir um,
að hinn dýrðlegi sveinn, sem
fór á undan í fóðruðum vagni
og gekk nú undir nafninu „hinn
heilagi Stefán“ myndi leiða her-
förina til farsælla lykta.
Nýliðar héldu áfram að slást
í förina og færðu með sér mat
og peninga, en oft var þröngt í
búi, og margir urðu hungrinu
að bráð. Ibúar stórborganna,
sem börnin fóru um, gáfu þessu
uppátæki þeirra hornauga. Samt
virtist enginn hafa gilda ástæðu
til að gera nokkrar ráðstafan-
ir til að snúa þeim heim. Ekkert
sýnir betur trúgirni þessarrar
aldar, en þegar prófessorar við
háskólann í París voru kallaðir
saman til að ræða um, hvort
nokkur hefði rétt til að skipta
sér af þessum ungu krossför-
um. Eftir mikil heilabrot varð
niðurstaðan sú, að háskólinn
fordæmdi krossförina. Tilskip-
un var gefin út, þar sem böm-