Úrval - 01.12.1943, Blaðsíða 92
90
ÚRVAL
var músunum skipti í tvo jafna
hópa. Öðnim hópnum var gefið
penicillin, en hinum ekkert.
Innan seytján klukkustunda
voru allar mýsnar, sem ekkert
penicillin höfðu fengið, dauðar,
en hinar hlupu sprækar um búr-
in, án þess að hafa hugmynd
um þá örlagaríku baráttu, sem
fram fór innra með þeim. Dag-
ar og vikur liðu, og aðeins ein
mús dó. Þetta dularfulla gula
duft hafði unnið fyrstu orustu
sína við dauðann í 24 tilfellum
af 25! Mörg hundruð músatil-
raunir fylgdu í kjölfar þessarr-
ar fyrstu tilraunar, og allar
gáfu jafn glæsilegan árangur.
Nú var Florey reiðubúinn til
að gera tilraunir sínar á mönn-
um. Sumarið 1941 valdi hann
sér nokkra sjúklinga til tilraun-
anna. Flestir voru þeir dauð-
vona sjúklingar, sem engar aðr-
ar læknisaðgerðir höfðu getað
hjálpað.
Það yrði langt mál, ef greina
ætti ítarlega frá hinum glæsi-
lega árangri þessarra fyrstu
tilrauna. Nefna mætti þó þrjá
sjúkhnga, sem voru alveg að
dauða komnir af blóðeitrun;
tveggja mánaða gamalt barn,
sem þjáðist af ,,staphylococc“-
eitrun í hryggnum, er síðar
breiddist út í fingurbeinin, háls-
inn og fæturna; og manninn,
sem kominn var alveg í dauð-
ann af heilahimnubólgu. Þessi
tilfelli og ótal mörg fleiri voru
öll talin vonlaus. En svo var
sjúklingunum gefið hið gula
töfraduft — og því nær allir
fengu fullan bata.
Það var þegar frá upphafi
ljóst, að penicillm var máttugt
vopn gegn „staphylococc“-sýkl-
um, sem tíðast valda graftar-
ígerðum og flestum illkynjuð-
um blóðeitrunar-tilfellum. Það
olli ekki neinum snöggum breyt-
ingum, eins og sulfalyfin. En
sjúklingunum fór brátt að líða
betur, matarlystin óx og lífs-
þrótturinn efldist. Og penicillin
hafði aðra kosti. Fólk, sem ekki
þoldi sulfalyfin, gat tekrð það
án nokkurra óþæginda. Það
hafði engin eituráhrif á líkam-
ann, og sýklarnir virtust vam-
arlausir gegn því.
En það hafði líka sína galla.
Það var ákaflega erfitt að fram-
leiða það. Maurarnir gerðu oft
beinlínis verkfall og neituðu að
framleiða þetta töfraduft. Og
jafnvel þótt þeir væru vinnu-
fúsir var eftirtekjan sorglega
rýr. Þegar framleiðslan var
mest, fengust tvær einingar af