Úrval - 01.12.1943, Blaðsíða 77
KÍNVERSKUR MENNINGARFRÖMUÐUR
75
fyrirkomulagi tókst að útrýma
bólusótt og ýmsum öðrum næm-
tim sjúkdómum úr héraðinu á
tæpum tveim árum.
Þegar innrás Japana hófst ár-
ið 1937 höfðu 80.000 nemendur
útskrifast úr alþýðuskólanum,
og menn tóku að streyma víðs-
vegar að úr Kína til að kynna
sér þessa starfsemi. — Þegar
Hankow var gerð að höfuðborg
landsins árið 1938, fól Chi-
ang Kai-shek yfirhershöfðingi
Chang Chi-shung hershöfðingja
að skipuleggja varnirnar í Hun-
an-héraði. Chang hershöfðingi
hafði kynnst starfsemi Jimmys
í Ting Hsien-héraði og fékk
hann nú til að skipuleggja sams
konar starfsemi í öllu Hunan-
héraði.
Þetta var einmitt tækifærið,
sem Jimmy hafði beðið eftir.
Hann skipulagði 30.000 aðstoð-
armenn, þeirra á meðal vís-
indamenn, prófessora og barna-
kennara, sem flúið höfðu undan
Japönum, og sendi þá út um
byggðina. Þessir menn hófu svo
kennslustarf sitt og var það í
miklu stærri stíl en nokkurn
tíma hafði áður þekkst í Kína.
Þegar Japanir gerðu innrás í
Ting Hsien-hérað, stóðu þar ein-
mitt fyrir dyrum fyrstu al-
mennu kosningarnar, sem fram
hafa farið í Kína. Jimmy flutti
bækistöðvar sínar til Hunan, og
seinna, þegar Japanir komu
þangað, til Szechwan. Það kom
brátt í ljós, að starfsemi
Jimmys í Ting Hsien hafði ekki
verið til einskis. Hvergi í Kína
var barátta skæruliða eins öfl-
ug og vel skipulögð og þar. Af
472 þorpum í héraðinu eru að-
eins 30 — þau sem næst liggja
járnbrautinni -— í höndum
Japana.
Nú hefir fyrirkomulag heil-
brigðismála-kennslu og sveita-
stjórnar eins og Jimmy hafði
skipulagt það í Ting Hsien ver-
ið tekið til fyrirmyndar fyrir
allt landið. Síðan stríðið byrjaði
hefir 27.000.000 Kínverja verið
kennt að lesa og skrifa, og
Jimmy álítur vel framkvæman-
legt að kenna allri þjóðinni að
lesa og skrifa á næstu tíu árum.
1 maí síðastliðnum var sam-
ankominn hópur vísindamanna
í Carnegie-höllinni í New York,
á dánardægri Copernicusar, og
voru þar heiðraðir þeir núlifandi
menn, sem valdið hafa mestum
gjörbi’eytingum í lífi þjóðanna.
Þeirra á meðal voru Einstein,
Disney, Ford — og Jimmy Yen.