Úrval - 01.12.1943, Blaðsíða 16
14
ÚRVAL
þeirra afla, sem í eðli sínu eru
íhaidssöm.
Vér verðum stöðugt að hafa
það í huga, að starfsaðferðum
þessarra stétta er á engan hátt
hægt að líkja saman við starfs-
aðferðir svipaðra stétta í hinum
vestrænu lýðræðisríkjum, eða
jafnvel í Italíu. Þær búa., eins
og allar aðrar stéttir í Þýzka-
landi, yfir byltingarreynslu og
þekkja þau lögmál, sem bylt-
ingar lúta. Þær hafa hafa öðl-
azt dýrkeypta reynslu í gegnum
miklar þjáningar og hættur.
Þeim er ljóst, að þetta er síðasta
tækifæri þeirra áður en þær
hverfa af sviði sögunnar, sem
vissulega mun verða, ef þeim
mistekst. Þær viðurkenna, að
þegar sé um byltingarástand að
ræða, og þær munu gera allt,
sem þær geta, til þess að hafa
hemil á byltingunni og ráða
stefnu hennar.
Þeirra bíður tvennskonar
vandamál. I fyrsta lagi, að
kljúfa raðir iðnaðarverka-
manna, því að frá þeim má
vænta blóðugrar byltingar, og
í öðru lagi að komast að viðun-
andi samkomulagi við Banda-
menn.
Þegar ástandið í Þýzkalandi
er komið á svipað stig og í
ítalíu, er Badoglio tók völdin,
er það sannfæring min, að hinn
þýzki Badoglio muni haga sér
ailt öðruvísi og skynsamiegar.
Badoglio tók ekki að sér forystu
neinnar hreyfingar í ítalíu.
Hann byggði allt sitt vald á her-
lögum og iöghelgi konungsins.
Hinn þýzki Badoglio mun ekki
hafa neinn konung að styðjast
við. Og áður en hann gerir til-
raun til þess að ná völdurn, mun
hann skapa sér pólitískt vald og
leggja fram stefnuskrá, sem
hefir líkur til að ná. hylli meiri
hluta þjóðarinnar. Sú stefnu-
skrá verður að vera það róttæk,
að almenningsálitið snúist gegn
starfsemi hinna allra róttæk-
ustu í hópi verkamanna.
Þjóðin verður orðin örþreytt
á styrjöldinni og því umróti,
sem alltaf fylgir styrjöldum.
Það mun verða þessum hópi til
stuðnings. Hann mun því leitast
við að koma á fót stjórn, sem
telur innan sinna vébanda hæg-
fara socialista og íhaldsmenn,
sem ekki eru nazistar, og allar
gráður þar á milli, og leggja
fram stefnuskrá, sem vafalaust
mun fela í sér eftirfarandi at-
riði:
Kröfu um heiðarlegan frið og
óskorað sjálfstæði sameinaðs