Úrval - 01.12.1943, Blaðsíða 93
HIÐ GULA TÖFRALYF „PENICILLIN“
'penicillin úr einum teningscenti-
metra af mauraskán. Þess má
geta til skýringar, að þegar um
alvarleg sjúkdómstilfelli er að
ræða, þarf tvær til þrjár mill-
jónir eininga af penicillin til að
vinna bug á sýklunum!
Framleiðslan var svo lítil, að
Florey varð að vinna penicillin
úr þvagi sjúklinganna. Vitað er
að minnsta kosti um eitt tilfelli,
þar sem lyfið þvarr áður en
meðferð var lokið, og sjúkling-
urinn, sem var á góðum bata-
yegi, dó áður en náðist í meira
penicillin,
Þannig var þá málum komið.
Penicillin var máttugt vopn
gegn ýmsum banvænum sýkl-
um, en gat aldrei komið að al-
mennum notum, nema fram-
leiðsla yrði hafin í stórum stíl.
Og Breta skorti öll skilyrði til
slíkrar stórframleiðslu. Florey
sneri sér því til Bandaríkjanna.
Hann lagði málið fyrir Lækna-
ráðið, Rannsóknarráðið og land-
búnaðarráðuneytið og bað þau
iim að leggja fram sinn skerf
h.vert á sínu sviði.
R.annsóknarstofa landbúnað-
arráðuneytisins tók að sér
ræktunartilraunirnar, þrjú stór
Iyfjafyrirtæki tóku að sér að
vinna penicillin úr maurunum
91
og Læknaráðið tók að sér a$
gera frekari rannsóknir á nota-
gildi þess.
Tuttugu og tvö sjúkrahús
voru valin til þessarra rann-
sókna. Penicillin var nálega ein-
göngu notað, þar sem öll önnur
lyf höfðu brugðizt, einkum þó
við blóðeitrun.
Þessar tilraunir hafa nú stað-
ið yfir í ár. Mörg hundruð sjúk-
lingum hefir verið gefið peni-
cillin. 1 blóðeitrunartilfellum
hefir það bjargað tveim af
hverjum þrem sjúklingum. Án
penicillins mundu þeir flestir
hafa dáið.
Við beinbólgu (osteomyelitis)
hefir það reynzt jafnvel enn
betur. Áður þekktist ekkert ráð
við beinbólgu nema skurðað-
gerð. Sárið var opnað og sýkti
hlutinn af beininu skafinn burtu
og slanga sett í sárið. Oftast
kostaði sjúkdómurinn margra
mánaða eða jafnvel ára sjúkra-
húsvist, en ef sýkingin breidd-
ist út orsakaði hún skjótan
dauða. Nálega allir sjúkling-
amir, sem gefið var penicillin,
fengu skjótan bata. Því var dælt
í æð eða vöðva á þriggja stunda
fresti, og á fáum dögum hafði
það drepið alla beinátusýklana
og sjúklingarnir útskrifuðust