Úrval - 01.12.1943, Blaðsíða 76
"74
ÚRVAL
mælum: „Mér geðjast vel að
hugmynd yðar. Þér notið sömu
aðferð við f jöldamenntun fólks-
ins og ég nota við fjöldafram-
leiðslu á bifreiðum.“ Jimmy
minntist þess síðar, þegar menn
höfðu orð á því, að seint gengi
með kennsluna. ,,Ef það tekur
sjö ár að framkvæma áætlun-
ina í einu héraði,“ sögðu menn,
„og í Kína eru 1900 slík héruð,
tekur það 13 þúsund ár að
mennta alla þjóðina.“ — „Alls
ekki“ svaraði Jimmy. „Ford var
lengi að búa til fyrsta bílinn
sinn, en þegar því var lokið,
hóf hann framleiðslu á þeim í
milljónatali.“
Jimmy hvarf aftur heim til
Kína með peningana. Hann
brann í skinninu eftir að fram-
kvæma kennsluhugmynd sína
í stórum stíl — ekki í lítilli
skólastofu með völdum hóp
nemenda, heldur úti á meðal
fólksins, við þau skilyrði, sem
fólkið býr í daglegu lífi.
1 Peking skipulagði Jimmy
herferð vísindamanna og pró-
fessora — sérfræðinga í kennslu,
hagfræði, stjórnlögum, landbún-
aði, heilbrigðismálum — herferð
úr borginni út í sveitina, úr
skólastofunni út á meðal fólks-
ins. Hann fór með alla þessa
lærðu menn úr hinum háreistu
sölum Pekingborgar út í borpin
í Ting Hsien, og þar settust þeir
að í lágreistum torfbæjum og
hófu starf sitt meðal bændanna.
Sérstök rækt var lögð við
heilbrigðismálin. Sérhvert þorp
í Hsien-héraði kaus sér heil-
brigðisfulltrúa úr hópi nemend-
anna í alþýðuskólunum. Hann
var sendur á tíu daga námskeið
og þar var honum meðal ann-
ars kennt að sótthreinsa neyzlu-
vatnsbrunna, nota 16 algeng lyf
úr lyf jakistu þorpsins, bólusetja
og annað því um líkt. Jafnframt
safnaði hann fæðingar- og dán-
arskýrslum, en slíkar skýrslur
höfðu áður verið mjög óná-
kvæmar, því að bændumir
höfðu af illri reynslu lært, að
slíkar skýrslur voru einkum
notaðar við herkvaðningar og
skattaálagningu.
Heilbrigðisfulltrúinn annað-
ist um öll minniháttar sjúk-
dómstilfelli, en öll alvarlegri til-
felli voru send á sjúkrahúsið í
Hsien, þar sem nokkrir reyndir
læknar og lærðar hjúkrunar-
konur unnu. Heilbrigðisfulltrú-
inn var ólaunaður, en hann naut
mikils álits í þorpinu, og á ný-
ársdag voru honum færðar gjaf-
ir og hann hylltur. Með þessu