Úrval - 01.12.1943, Blaðsíða 96
LEYNISTARFSEMI I PARÍS
r
jZJ'G kvaddi ekki Evrópu. Ég
var neðan þilja, þegar skip-
ið lagði frá. Vélamar hljóta að
hafa verið nokkurn tíma í gangi,
áður en ég heyrði í þeim. Ég
hraðaði mér upp á þilfar. Strönd
Portúgals var þegar horfin í
kvöldmóðuna, og hið mikla skip
sigldi uppljómað og eitt síns
liðs. Á hvíta skipshliðina var
letrað svörtum stöfum, sem
voru upplýstir með sterkum
kastljósum: Stjórnarerindrek-
ar — Drottningholm —
Stjórnarerindrekar.
Ég var á heimleið eftir að
hafa verið meira en ár í fang-
elsi hjá nazistum. Einhvers-
staðar í Bandaríkjunum hafði
verið opnuð klefahurð fyrir
þýzkum fanga, sem hafði verið
látinn laus í skiptum fyrir mig.
Wiley, ræðismaður Banda-
ríkjanna í Lissabon, hafði sagt
mér, að þessi þýzki fangi væri
Jóhanna Hoffmann, hár-
greiðslukona á stórskipinu
Bremen, sem dæmd hafði verið
árið 1938 fyrir að vera meðlim-
ur hættulegs, þýzks njósnara-
félagsskapar í Bandaríkjunum.
Var lausn mín í raun og veru.
svona mikils virði?
Starfsmaður í amerísku ræð-
ismannsskrifstofunni í Lissa-
bon svaraði spurningunni fyrir
mig. „Góða frú Shiber,“ sagði
hann, „ráðuneytinu er fullkunn-
ugt um afrek yðar í Parísar-
borg. Hugsum okkur, að brezku
stjóminni hefði verið unnt að
ía Edith Cavell látna lausa í
síðasta stríði, með fangaskipt-
um. Þegar öllu er á botninn
hvolft, þá eruð þér Edith Ca-
vell þessa stríðs.“
Ég fann mig knúða til að and-
mæla þessu. „Nei,“ sagði ég,
,,ég er ekki jafnoki hennar, en
ef til vill var Kitty vinkona mín
það. Afrek okkar voru henni að
þakka. Ég fetaði einungis í fót-
spor hennar. Og hún ein hefir
fært fórnina. Hún er enn í hönd-
um þýzku leynilögreglunnar, ef
hún er á lífi; ef til vill er hún
dáin, því að dauðadómur vofði
yfir henni. Já, Kitty Beaurepos
getur vel hafa verið Edith Ca-
vell þessa stríðs.“
Ég hitti Kitty árið 1925 á
einni af hinum árlegu ferðum.