Úrval - 01.12.1943, Blaðsíða 62
60
XJRVAL,
ekki mörg þúsund unga menn
heim sem geð- og taugabilaða,
aumingja. Einn af herlæknun-
um í Norður-Afríku sagði við
mig: „Hin nýja meðferð sem við
höfum tekið upp á „sprengju-
dofa“-sjúklingum, hefir borið
glæsilegan árangur. Svo má
heita, að allir slíkir sjúklingar
séu annaðhvort sendir heil-
brigðir aftur til vígstöðvanna
eða til annarra nauðsynlegra
starfa að baki víglínunnar.“
En þó er mest um það vert, að
eftir stríðið koma þessir menn
heim til sín heilir heilsu og fylli-
lega starfhæfir. Maðurinn, sem
á mestan heiðurinn af þessu,
heitir Frederick Hanson og
var fyrir stríð starfandi læknir
í borginni Montreal í Kanada.
Ég hafði tal af þessum lækni,
ungum og grannvöxnum manni
með gleraugu, yfirlætislausum
og mjög fáorðum, unz ég minnt-
ist á „spregnjudofa“.
„Sprengjudofi er ekki til,“
sagði hann nokkuð hvasst. „í
síðustu styrjöld var þetta orða-
tiltæki notað, af því að lækna-
vísindin héldu, að þeir sem
fengju tauga- og geðbilanir af
völdum stríðsins, þjáðust af
heilahristing frá sprengjuþrýst-
ing. Raunverulega voru það
mjög fáir, sem fengu heila-
hristing af þessum orsökum, en
nafnið festist við, öllum til ills.
Ef hermaður sá orðið „sprengju-
dofi“ á sjúkraspjaldi sínu, hélt
hann strax, að hann væri geð-
veikur, og við það hríðversnaði
honum. En núna köllum við öll
slík tilfelli ,,ofþreytu“ og líkleg-
ast er það bezta lýsingin á hin-
um mismunandi taugabilunum
af völdum stríðsins.
Eitt er það enn, sem við
verðum að hafa hugfast. Þessi
„ofþreyta“ eða taugaveiklun
virðist leggjast jafnt á allar
manntegundir. Iiugrekki og
ragmennska eiga ekkert skylt
við þetta. Ekki heldur tíma-
lengdin, sem maðurinn hefir
verið að herþjónustu. Jafnvel
hið þaulæfða úrvalslið í
sprengju- og orustusveitum
flughersins fær hana.
Aðalorsökin fyrir þessari
,,ofþreytu“ er hið endalausa
sálarstríð innra með mönnum,
milli skyldurækninnar annars
vegar og sjálfsbjargarhvatar-
innar hins vegar. Við skulum
alltaf hafa það hugfast, að ótt-
inn er hin eðlilega kennd hjá
mönnum í lífsháska. Allir her-
menn leggja kvíðafullir út í
bardaga. En þeir sigrast á kvíð-