Úrval - 01.12.1943, Blaðsíða 91
HIÐ GULA TÖFRALYF „PENICILLIN"
89
unni, en tíu ár liðu áður en frek-
ari rannsóknir hófust. Hvers
vegna dróst það svo lengi?
Meginorsökin var sú, að um
þær mundir var mjög lítill áhugi
á ,,chemotherapy“ — lækningu
sjúkdóma með kemiskum efn-
um. Allt of margir höfðu til
þessa leitað að slíkum töfra-
efnum — án árangurs. Efnin,
sem þeir fundu, höfðu flest
þann annmarka, að þau reynd-
ust banvænni fyrir sjúklingana
en sýklana. En svo fundust
sulfalyfin. Og þá vaknaði áhugi
manna fyrir þessari grein lækn-
isfræðinnar á ný.
Sulfalyfin reyndust sannnefnd
töfralyf gegn sumum sjúkdóm-
um — en einskis nýt gegn öðr-
um. Svo var t. d. um graftar-
sýkilinn. Howard Florey, lækn-
ir í Oxford, minntist maursins
hans Flemings. Hann hafði
drepið sýklana á glerplötunni.
Mundi hann ekki geta haft
sömu áhrif í mannslíkamanum ?
Hvorki Florey né starfsbræð-
ur hans vissu þetta. En þeir
ákváðu að reyna það — og við
megum vera þeim þakklát fyr-
ir. Þeir byrjuðu á því að rækta,
grænmaurinn í leirflöskum.
Þegar mauramir voru orðnir
að harðri, seigri skán, tóku
efnafræðingamir við. Einhvers
staðar í þessari skán var sýkla-
banann að finna.
Með seinlegum efnagreining-
um einangruðu þeir ýmis efna-
sambönd, sem ekki höfðu sýkla-
drepandi áhrif. Að lokum kom
fram hjá þeim örhtil ögn af
gulbrúnu dufti. Hugsanlegt var,
að þetta væri sýklabaninn.
Fyrstu tilraunimar með þetta
gula duft gerðu þeir í tilrauna-
glösum. Það kom í ljós, að einn
á móti 160 milljónum af efninu
nægði til að draga úr vexti sýkl-
anna! Slíkt eitur höfðu menn
aldrei fyrir hitt. Það var mörg
hundruð þúsund sinnum ban-
vænna en sulfalyfin.
Árangurinn í tilraunaglösun-
um var glæsilegur. En ekki var
allt fengið með því. Þetta efni
var á einhvem hátt banvænt
sýklum, en gat það ekki líka
verið banvænt mönnum? Slikt
hafði skeð fyrr, og það var ekki
nema ein leið til að fá úr því
skorið.
Florey og aðstoðarmenn hans
gerðu nú fómardýmm sínum
ramman seið, en það voru
graftrarsýklar af tegundinni
„streptococcus pyogenes“. Þeir
dældu banvænum skammti af
þessum sýklum í 50 mýs. Síðan