Úrval - 01.12.1943, Blaðsíða 94
ÚRVAL
92
úr sjúkrahúsinu eftir fáeinar
vikur.
1 öðru sjúkrahúsi var penicill-
in reynt á þrem sjúklingum með
lekanda, sem ekki hafði læknast
við sulfalyf. Seytján klukku-
stundum eftir að byrjað var að
gefa penicillinið var prófsvörun
þeirra neikvæð. Sulfalyfin lækna
að meðaltali 80 af hverjum 100
lekandasjúklingum. Svo virðist
sem penicillin muni geta lækn-
að hina 20, og ætti þá að vera
hægt að útrýma þessum hvim-
leiða sjúkdómi með öllu.
Hvemig vinnur penicillinið ?
Menn vita það ekki með vissu,
en nokkur atriði eru ljós. I til-
raunaglösum drepur það ekki
beinlínis sýklana, heldur stöðv-
ar æxlun þeirra. Á sama hátt
vinna sulfalyfin. En þegar kom-
ið hefir verið í veg fyrir f jölgun
sýklanna, veitist hvítu blóð-
komunum auðvelt að vinna bug
á þeim.
Penicillin er gagnslaust við
hjartabólgu og berklum. Og það
eru litlar líkur til, að það muni
reynast vel gegn vírussjúkdóm-
um, svo sem mænuveiki og gulu-
sótt. Ekki hefir það heldur ver-
ið reynt við taugaveiki, útbrota-
taugaveiki eða sárasótt.
Það hefir reynzt vel við
nokkrum lungnabólgutilfellum,
sem sulfalyfin höfðu ekki ráðið
við, og einnig gegn heilahimnu-’
bólgu.
Framleiðsla á penicillin er
enn af mjög skomum skammti.
Herinn hefir þegar beðið um
miklu meira af því en hægt hef-
ir verið að láta honum í té.
Þrettán lyfjaverksmiðjur, auk
þeirra þriggja, sem áður eru
nefndar, hafa ákveðið að hefja
framleiðslu á því. En þrátt fyr-
ir það, eru litlar líkur til þess að
penicillin verði fáanlegt til al-
mennrar notkunar fyrr en eftir
stríð.
Eina vonin er, að takast megi
að framleiða það með kemisk-
um aðferðum (syntetiskt). Ef
það tækist, mundi enginn hörg-
ull verða á því. En sem stendur
em litlar líkur til þess að það
verði hægt. Penicillin virðist
vera mjög flókið efnasamband,
sem erfitt mun reynast að búa
til á kemiskan hátt.
En hvernig sem það tekst,
er þegar ljóst, að með penicill-
ini hefir læknavísindunum bor-
izt óvenju máttugt vopn í hend-
ur, og að í framtíðinni mun
uppgötvun þess verða skoðuð
sem einn af stærstu sigrum
þeirra.