Úrval - 01.12.1943, Blaðsíða 81
KROSSFERÐ BARNANNA
7B»
börn eru saklaus og syndlaus
varð þetta upphaf krossferðar
bamanna. Hinir trúuðu horfðu
rólegir á, meðan hryllilegasta
blað sögunnar var skrifað í
nafni Jesú Krists.
Frásagnir af krossferð barn-
anna eru af skornum skammti.
Enginn veit, hver fyrstur stakk
upp á henni, og sumir hafa
jafnvel efast um, að hún hafi
nokkurn tíma verið farin. En
það er svo oft skírskotað til
hennar í frásögnum frá þrett-
ándu öld, að enginn efast leng-
ur um þessa sögu. Til allrar
óhamingju höfðu böinin engan
Lúkas guðspjallamann sér til
fylgdar, sem gæti varðveitt frá-
sagnir úr ferðinni frá glötun.
Vitað er um tvær kvíslar af
þessari krossferð. Átti önnur
upptök sín í Þýzkalandi, en hin
í Frakklandi. Krossferð barn-
anna var farin árið 1212, milli
fjórðu og fimmtu krossferðar.
Það er sagt, að hægt sé að
rekja upptök krossferðarinnar
til Gamla mannsins á Fjallinu,
leiðtoga Libanon-morðingjanna,
(en það var trúarflokkur, sem
Hassan persneski hafði stofn-
að). Ofstæki þeirra, blind hlýðni
og munaðargirni gerði þá að
hinum mestu grimmdarseggjum
á miðöldum. Sagan hermir, að
Gamli maðurinn á Fjallinu hafi
tekið tvo Frakka til fanga og
boðið þeim frelsi gegn því, aö
þeir hyrfu aftur til ættlands
síns og flyttu honum franska
drengi. Áttu þeir að hafa geng-
ið að þeim skildaga og ginnt
frönsk börn til fararinnar.
Börnin merktu sig krossi og
fóru að hópast saman og búast
til ferðar. Úr þessu þróaðist
krossferð barnanna. Um hana
var sagt, ,,að hún hafi verið fai -
in eftir innblæstri djöfulsins.
sem fýsti að svala sér á barns-
blóði eftir að hafa fengið sig of-
saddan á morðum fullorðinna.“
Þýzki hópurinn var undii
stjórn drengs, sem Nikulás hét.
Hann sagðist vera sendur af'
guði til þess að leiða börnin til
landsins helga. Foreldrar reyndu
eftir mætti að slæva eldmóð
barna sinna, en þegar allar for-
tölur komu fyrir ekki, létu þeir
barnfóstrur fylgja þeim, til að
vaka yfir velferð þeirra. Þótt
meðalaldur þessarra ungu Þjóð-
verja væri aðeins um það bil
tólf ár, slógust margir eldn
menn og konur í hópinn, sem
fór sívaxandi.
Nokkur stúlkubörn klæddust
drengjafötum og sluppu þannig