Úrval - 01.12.1943, Blaðsíða 19
HVAÐ SKEÐUR VIÐ FALL NAZISMANS?
17
tveg-gja hópa, sem báðir hafa
byltingarreynslu og þekkingu í
byltingaraðferðum.
Verkamennimir þrá allir frið.
Ef vér gerum ráð fyrir, ao
stjóm nazista verði steypt af
stóli, munu hin íhaldssamari öfl
aðeins geta haldið völdum, ef
þau fá skjóian frið. Með því
móti geta þau ef til vill feng-
ið vemlegan hluta af verkalýðn-
um til fylgis við tiltölulega
frjálslynda, lýðræðislega stefnu-
skrá, og einangra þannig hinn
byltingasinnaða hluta hans.
Ef þe'm tekst ekki að fá frið
með slíkum skilmálum, mun
byltingunni aukast ört fylgi,
jafnvel út fyrir raðir verkalýðs-
ins.
Verkamönnunum má skipta í
þrjá flokka. í fyrsta lagi hina,
gömlu verkamenn, sem búa yfir
mikiili pólitískri reynslu og haf8,
hlotið marxistískt uppeldi og
menntun. f öðm lagi hinir ungu
verkamenn, sem flestir eru í
hemum, ómótaðir í skoðunum,
en móttækilegir fyrir hverskon-
ar byltingarkenningar og í
þriðja lagi erlendir verkamenn,
sem nú er helmingur alls vinn-
andi verkalýðs í landinu.
Hinir gömlu, róttæku verka-
menn vita, að ef þeir fyrirgefa
andstæðingum sínum í byltingu
og leiða þá inn í herbúðir sínar,
munu þeir bíða ósigur og tapa
byltingunni. Það er reynsla
þeirra frá 1918; Þeir vita einnig,
að ef þeim tekst ekki að ná
völdum fljótt, muni þeir bíða
ósigur síðar. Loks vita þeir, að
fyrst og fremst ber þeim að
beita áróðri sínum innan hers-
ins. Þeir verða að fá syni sína
í lið með sér.
Öil hin þýzka æska hefir til-
einkað sér mikið af róttækum
vígorðum og kennisetningum
frá nazistum. Þegar yfirvof-
andi ósigur hefir gert allar von-
ir hennr.r og hugsjónir að engu,
mun reynast auðvelt að kveikja
í henni byltingaranda og skapa
úr henni baráttulið, með þeirri
æfingu, sem hún hefir í hvers-
konar vopnaburði, og því skeyt-
ingarleysi um eigið líf, sem hún
hefir verið alin upp í. Hið þýzka
ávarp frá Moskvu, sem hvetur
hermenn úr verkalýðsstétt til
að leggja ekki niður vopnin,
heldur snúa heim og taka völd-
in í sínar hendur, er vísbending
um það, sem koma skal.
Afstaða hinna erlendu verka-
manna í Þýzkalandi er allt önn-
ur. Hversu róttækir sem hinir
þýzku verkamenn eru, stefna