Skírnir - 01.01.1870, Blaðsíða 68
68
FRJETTIR.
Frakkl.nnd.
ríkisins hefir nú af lokiS sinum hlut verka, en oss her a8 taka
til þess, er oss er ætlaS aS vinna“. í þeirri ræSu ámælti hann
harSlega óeiruflokkinum, og kvaB þaS skyldu allra dugandi manna,
að beita sjer sem einarSlegast í móti og brjóta öll ráS hans á
hak aptur. Hann sagSist annars vera góSrar vonar um , aS á
þeim mönnum mundi þaS rætast, er Mirabeau hefSi sagt viS
samskonar menn á sínum tíma (,,Jakobína“): „þaS líSur aldri á
löngu, áSur þeir menn verSa öllum leiSir, er aldri eru ánægSir
meS neitt“. LýSvaldsmenn og æsingablöS þeirra höfSu sjer þaS
nú sjerilagi til efnis, aS þingsetunni hefSi veriS frestaS, en ekkert
ákveSiS um, hvenær hún skyldi aptnr byrja. Nú segja lögin svo
fyrir, aS eigi skuli meir en sex mánuSir milli þinga, og því
þótti þeim sjálfsagt, aS þingiS ætti aS byrja aptur þann 26. ok-
tóher — en bæri hjer út af, mætti allir sjá, aS keisarinn og stjórn
hans vildi beita þjóSina ólögum. Stjórnin hafSi sagt, aS hún
þyrfti aS hafa frestinn svo langan, aS hún gæti búiS til þær uppá-
stungur til laga, sem breyting stjórnarskipunarinnar hefSi í för
meS sjer, en hinir börSu blákalt fram, aS keisarinn vildi finna
brögS og refjar til þess aS kippa öllu aptur í hiS gamla horf.
Um þessar mundir (í útgöngu águstmán.) varS keisarinn veikur
af nokkurskonar nýrnameini, og fóru svo ýmsar sögur af, aS
margir kváSu ósýnt um bata. þetta gerSí óvini hans’ enn djarf-
ari, og þaS var auSsjeS, aS þeir treystu því, aS stjórninni
mundi brátt fatazt, ef keisarinn tæki aS veslast upp, eSa þeir
viidu halda óeirSarandanum vakandi í lýSnum, ef meinsemdin
kynni aS leiSa keisarann til bana. Sumir kváSu þaS sjálfsagt,
aS fulltrúarnir gengi sjálfkvaddir á þing þann 26. okt., og hefSi
þaS fyrst atgjörSa sinna, aS hefja ákæru gegn keisaranum. Einn
af þingmönnum, Kératry greifi, er áSur hafSi veriS meS miS-
flokksmönnum, en nú horfiS í li& lýSvaldssinna, skoraSi á full-
trúana af þeim flokki aS fylgja sjer til þinghallarinnar (Palais
Bourbon) þann dag, sem nú var nefndur. þó keisarinn væri
talsvert þjáSur til þess i miSjum september mánuSi, var hann
optast á ferli og tók þátt í öllum ráSsetum, en nú ljet hann
frekjuflokkinn skilja, aS hann mundi því framí'ara um þing-
setninguna, er honum þótti bezt hlýSa, og boSaSi (2. okt.),