Skírnir - 01.01.1870, Blaðsíða 230
230
FRÉTTIB AF ÍSLANDI.
en eptir lok JunimánaSar gjörSi stillt veSnr; voru þá á suírnr-
og vesturlandi logn og mollur, en norSan lands og austan voru
sífeldar þokur og kuldanæSíngar, er stóSu af ísnum, og nætur-
frost mestallan JulimánuS. Fyrri hluti AugustmánaSar var sá hinn
eini timi sumarsins, er kalla mátti hagstæSa veöurátt yfir land
allt. Undir höfuÖdag (29. August) kom los á ísinn og skömmu síÖar
hvarf hann algjörlega frá landinu; en eigi að síöur gjöröi þó um
jþaö leyti kulda mikla, og votviöri, er þeim fylgdu, spilltu mjög
nýtingu á heyjum manna. í 21. vikn sumars (11 —13. Sept.)
gjörÖi ofsaveÖur á norÖan, og féll þá snjór svo mikill norÖanlands,
að mælt er, aö gánga hafi mátt á skíðum milli bæja í Bárðardal,
og svo var frostið mikiö, að hélaöir voru gluggar í íbúÖarhúsum.
Hinn síðari hlut SeptembermánaÖar var aptur hagstæð veðurátt,
einkum sunnan lands og vestan; sama má segja um mikinn hlut
Oktohermánaðar, að undanteknu ofsaveðrinu, er gjörði 12. s. m.;
var áhlaup það svo mikið norðanlands, að engir þykjast mtina
slikt á auða jörð; fórst þá fjöldi fjár, er fennti eöa hrakti í vötn
og tjarnir, einkum í Skagafirði. Yetrarkomunni fyigdu um mestan
hlut iandsins harðindi mikil, og voru sífeld noröankaföld framundir
jól; var það sumstaöar mörgum dögum saman, að eigi þótti fært
til næstu hæja. Undan þessu má þó taka Vestfirði, því viö ísa-
fjarðardjúp haföi eigi um nýjár verið kominn nema einn inui-
stööudagur fyrir sauðfé; i láglendustu sveitunum sunnanlands
varð og lítiö úr harðindum þessum, og um alla Rángárvallasýslu,
og allt austan undir Mýrdalssand varö þeirra naumast vart. Um
sama leyti, sem nefnd barðindi gjörði, rak hafís nokkurn fyrir
noröan land; komu á honum bjarndýr og voru nokkur þeirra
drepin. A þorláksmessu (23. Decbr.) gjörði bata góðan um allt
land og hélzt hann framyfir nýjár; rak þá allan ís aptur frá land-
inu og jarðir komu upp von bráðara, en svo var gaddurinn orðinn
mikill sumstaðar norðanlands og í nokkrum hinum háleridari
sveitum annarstaðar, aö eigi var þar komin nægileg jörð upp
fullum mánuði eptir að batinn kom. Breiðamerkurjökull skreið í
fyrra sumar svo lángt fram, að einúngis rönd ein örmjó var eptir
meðfram sjónum; jafnframt breytti og Jökulsá á Breiðamerkursandi
farveg sínum og kastaði sér austur í Suðursveit; eyddi hún þar