Skírnir - 01.01.1870, Blaðsíða 234
234
FRÉTTIR AF ÍSLANDI.
heppnaSist svo vel 1868, brást nú me5 öllu. — Hákarlsafli á
opnnm skipum var hvervetna meS minna móti, nema norbantil á
Hornströndum: þar var um sumarmál svo góBur hákarlsafli, aS á
Gjögri fengust á fám dögum mikiS á fimta hundraS tunnur lifrar. —
Hákarlsafli á þilskipum tálmaSist mjög viS hafísinn, en vel aflaS-
ist þegar því varð sætt; viS ísafjarSardjúp feugust til jafnaSar
160 — 170 tunnur liírar á skip og yfir 200 tunnur mest. Kríngum
EyjafjörS, á SiglufirSi og í Fljótum er þiljuskipa útvegur mestur,
rúm 30 skip; þau gátu flest komizt út skömmu eptir fardagana,
en öfluSu iítiS fyrri en seinni hluta JulimánaSar; öfluSu þau þá
á tæpri viku mjög vel; meSalhlutir voru tvær tunnur lýsis, en
nokkrir fengu meira en þrjár tunnur.
Selaafli var hvervetna norSanlands mjög lítill, enda skemmdi
og ísinn nætur og lagnir.
Hvalrekar voru eigi margir næstliSiS ár; á HrafnkelsstöSum í
GarSi var í JulimánuSi róinn í land hvalur, 35 álnir milli skurSa.
í DýrafirSi rak vænan hval í byrjun EinmánaSar, en var nokkuS
skemmdur; í OktobermánuSi rak hval á Snæfjallaströnd; í SmiSju-
vík á Ströndum rak og hval; þéir er fundu hann vildu leyna
honum og festu hann eigi, svo hann rak frá aptur. Hval rak á
Skaga í September, og annar hljóp á land í þistilfirSi undan
ísnum; var hann 45 álnir á lengd; á SleSbrjótssandi í Múlasýslu
rak hval 1 Oktober, og urn páskana annan í HornafirSi; auk
þessa náSist á nokkrum stöSum norSanlands töluvert af höfrúng-
um. Af öSrum aflabrögSum er einkum aS telja silúngsveiSina
i Mývatni, er var hæSi mikil og góS, svo þaSan fóru daglega
lestir meS silúng víSsvegar um þíngevjarsýslu. Aptur á móti
inun fuglveiSi víSa hafa veriS meS minna móti, og viS Drángey
brást hún meS öllu; hefir SkagfirSíngum venjulega veriS mikil
björg aS henni. Sakir vorkuldanna og hafíssins settist æSarfugl
seint upp, og þóttu vörpin vera í lakara lagi, einkum aS því er
eggjatökuna snerti. þess má geta, aS í harSindunum á Góunni
leitaSi fjöldi hreindýra ofan til hygSa í Múlasýslu og náSist eigi
allfátt af þeim.
Af erlendum aflamönnum hér viS land er fyrst aS telja hiS
danska fiskiveiSafélag; þaS hefir um undanfarin ár beSiS stór-