Skírnir - 01.01.1870, Blaðsíða 167
T yrkjaveldi.
FRJETTIR.
167
Soldán befir átt a<5 taka á móti mörgum tignum mönnum
ári8 sem leið, og hefir honum svo fengizt færi á aS gjalda þeim
risnu sína og virktaviötökur fyrir tveimur árum síÖan. Fyrst
komu þau til hans prinsinn af Wales og kona hans, en í haust
lögöu þeir flestir leiö sína um hans garö, er sóttu vígsluhátíðina
á Sueseiöinu. f»á heimsóttu hann Austurríkiskeisari og krónprins
Prússa, auk fleiri, en þó vandaÖi hann engum svo viötökurnar,
sem drottningu Frakkakeisara. Eigi er sjaldan orÖ á því haft, aö
soldáni veiti í þyngra lagi meö fjárhaginn, en af viötökunum
einum má sjá, a0 hjer hlýtur ærna mikiö aÖ ganga í súginn,
hvenær sem halda skal á hirörausninni. Löngu áður en drottn-
ingin lagÖi af staö heimau ljet soldán taka til viöbúnaðar. Hann
dró her saman (20 þús.), er skyldi sýna henni íþróttir sínar, en
nálægt herbúðunum var reistur forkunnar fagur hallarturn, a8 hún
gæti þaðan horft á, hvaö fram færi. Heilar húsaraÖir voru rifnar
niöur á sumum strætum, svo aö umferðin yrði greiöari, eöa þar
yrði nóg rúm fyrir drottninguna og fylgd hennar. Mörg strætin höfðu
fengið nýjar stjettar og steinalög, og nýjar gangbrautir lagðar og
þrepgaröar á mörgum stööum, þar sem hún mundi leggja leiðir
sínar aö skoða borgina. Um gullbúinn buröarstól til þeirrar
umferðar, er kostaöi 200,000 franka, má og geta, þó lítilræði
sje hjá mörgu öðru. Enn fremur var heilum herflota haldiö
saman í stólpasundi, 50 skipum, eöa 25 hvorumegin, þar sem
drottningarskeiðin renndi upp að borginni, en hvert þeirra kvaddi
hana 101 skotum. þegar skeiðin var komin inn úr skipraða-
sundinu og gagnvart Beglerbeghöll (hinumegin sundsins), kom
í móti henni skrúðbátur og á honum Soldán sjálfur. Bátinn hafði
hann látið smíða til þessarar hátíöar, og búinn sem fagurlegast.
Hann var með 20 árum á hvort borð (tvítugsessa), en á
framstafninum sat dúfa af silfri, svo mikil og dýrt búin, að
mestu ýkjasögur gengu af fjemætinu. Yfir bátnum var tjaldbimin
forkunnar fagur, með gullskúfum og glitsaumi, en að honum höfðu
unnið 200 tyrkneskar konur í marga mánuði. Soldán flutti
drottninguna til hallarinnar, er fyrr var nefnd, en um kveldið og
næstu daga var mikil fagnaðar viðhöfn í allri borginni og með
fram sundinu.