Skírnir - 01.01.1870, Blaðsíða 220
220
FRJETTIR.
Euyptaland.
brýr yfir Nílá, en gufnskip flýta þar förum manna og flutningum.
Borgirnar hafa allar búizt mjög um eptir háttum Evrópumanna,
meS steinlögSum og fögrum strætum, brenniloptsljósum um nætur,
leikhúsum og allskonar stórhýsi (gestahöilum og fl. þessh.). Lög-
gæzlulið hefir jarlinn og skipað í borgunum, sem því er hagaS í
vorri álfu, og sett fyrir þaS á sumum stöSum menn af Evrópu-
kyni. þetta mun jarlinn og landshúar meta allt, sem faS er vert,
en hitt efast menn um, aS hann meS sjálfum sjer beri neina virS-
ingu fyrir háttum og siSum Evrópubúa. j»ó hann taki — eSa
rjettara sagt api mart fleira eptir þeim. AS vjer ekki tölum um
hirSþjóna hans í Evrópubúningi, eSa aS konur hans mega skemmta
sjer í leikhúsum — en, sem vita má, ósýnilegar —, virtu allir
þaS svo, er hann hjó til fulltrúaráSiS, aS hann vildi láta þaS
herast til Evrópu, hversu ötull hann væri aS „fylgja tímanum".
En honum þykir mikiS undir því komiS, aS vera í sem beztum
metum hjá Evrópumönnupi og eiga höfSingja þeirra sjer innan-
handar. RáSiS eba þingiS sjálft er aS kalla þýSingarlaust, og
mundi kveSa „já og amen“ viS hverju, sem undir þaS væri boriS,
t. d. því, ef jarlinn Ijeti spyrja fulltrúana aS, hvort þeim litist
ekki ráSlegast, aS þeir yrSu allir hýddir. Skattar og álögur eru
jafnþungar og fyrri, og jarlinn eySir eins óspart milljónunum til
skrauthalla, viShafnar og munaSarlífis — aS vjer ekki tölum um
herhúnaSinn. FólkiS sveitist og borgar — og breytingin er ekki
önnur en sú, aS hvorttveggja er samþykkt á þingi. Evrópu-
menntan á Egyptalandi er enn aS eins í ytra fari — en þar sem
ósiSaSar þjóSir taka eptir hætti kristinna manna, verSa þær um
leiS aS játa, aS þær standi þeim á baki, og jafnan fylgir því
annaS meira þegar fram líSur. — þess skal geta, aS jarlinn hefir
sent son sinn til náms viS háskólann í Oxford, og er þá líklegt,
aS hinn ungi maSur verSi horfnari aS hugsunarháttum Evrópuhúa,
en feSur hans hafa veriS.
Madagaskar.
KristniboSar frá Englandi og fleirum löndum iiafa í langan
tíma boSaS hjer rjetta trú og haft góSan árangur. Nú hefir þó