Andvari - 01.01.1885, Blaðsíða 10
4
Æfiágrip
skorls, að geta halclið til Kaupmannahafnar til náms við
háskólann þar; pví að faðir hans var alla æfi maður
fátœkur.
En um sumarið 1834 rjeðsfc hann í, að leita til
Kaupmannahafnar, til að halda par áfram námi sínu í
lækningafrœðinni; ætla jeg víst, að hann hafi ráðizt í för
þessa að miklu leyti fyrir tilstyrk konferenzráðs pórðar
Sveinhjarnarsonar, sem þá var orðinn meðdómandi í
landsyíirrjettinum, og hafði kvongazt ekkju Stefáns heit-
ins amtmanns Stephensens, Guðrúnu Oddsdóttur, móð-
ursystur Jóns landlæknis Hjaltalíns. Má víst hafa það
fyrir satt, að hann hafi fengið farið hjeðan með skipi
því, er sótti Eriðrik konungsson (síðar Friðrik 7.) hing-
að til landsins þá um sumarið, enda hofur hann vafa-
laust fengið farið ókeypis.
Þegar til Kaupmannahafnar kom, hjelt hann áfram
lækninganámi sínu, og tók próf í handlæknisfrœði
(Chirurgi) við „chirurgisk Akademi“ um vorið 1837,
og hlaut fyrstu einkunn fyrir þekkingu sína. Áriðeptir
(1838) fór liann vísindaferð til Þýzkalands, og kynnti
sjer á þeirri ferð marga spítala fyrir geðveika menn, en
um vorið 1839 gekk hann undir próf í annari grein
læknisfrœðinnai (den medicinske Del) við háskólann í
Kíl á Holtsetalandi, og hlaut ágætiseinkunn (laudabilis
smnnia cum laude) í því prófi. Sama árið veitti há-
skólinn íKíl honum doktors-nnfnbót fvrir rit, sem hann
hafði samið á latínu: de Radesyge, Lepra et Eleplian-
tiasi septentrionali. Að því húnu hjelt hann aptur til
Kaupmannahafnar, og var þá skipaður læknir við her-
sveit konungs (Compagnichirurg ved Kongens Regi-
ment), en fjekk 4. dag sept.embermánaðar sama árið
nafnbotina Bataillo?ischirurg. Af pessu má ráða, að
hann hefur þegar fengið gott orð á sig fyrir þekkingu
sína og verið talinn góður læknir. Sumarið 1839 kom
hann snöggva ferð hingað til landsins, og ritaði þá
ritlinginn »Aðfinning við eineygða Fjölni», ogljetprenta