Andvari - 01.01.1885, Blaðsíða 65
Odáðahraun.
59
mælingarverkfæri í köldu veðri. J>egar fór að rofa til,
sást yíir mikinn hluta Ödáðahrauns, Dyngjufjöll og alla
þá hraunstrauma, sern frá þeim hafa runnið; Kerlingar-
dyngja og Hvammfjöll blasa við 1 norðri, víðsýni er
hjeðan eflaust roikið í björtu veðri. Við gengum sama
veg niður af fjallinu aptur niður í Hrúlsrandir og síð-
an þaðan niður í Grafarlönd. Há var orðið beztaveður
og kvöldið var mjög fagurt; fjöllin í hvítgullnu mistri,
himininn blár með hvítgráum netskýjum. Vegurinn, er
við fórum til baka yfir hraunin beina leið í botnana á
Grafarlandaá, var töluvert betri en sá, er við fórum um
morguninn. Grafarlandaá kemur upp í hrauni í mörg-
um pyttum, síkjum og grafningum. Klukkan var orðin
yfir 2 um morguninn, er við komum að tjaldinu.
Suður af Herðubreið gengur allmikill í]allarani,sem
jeg hefi heyrt menn kalla Tögl eða Herðubreiðartögl, og
eru þau um 3400 fet á hæð. Pessi fjallgarður er þó
eigi áfastur við Herðubreið; mjótt hlið eða sund er á
milli. Við riðum suður eyrarnar milli Lindaár og Jök-
ulsár fram í Lindabotna; takmarkast þessar víðáttumiklu
eyrar að vestan og sunnan af hrauni, og er hraunrönd-
in víðast snarbrött og brotið framan af, líklega af flóð-
um og hlaupum úr Jökulsá, er hún hefir flætt yfir allar
eyrarnar; Lindaá fellur með hraunröndinni. Hraun
kringja um Herðubreið á alla vegu, þó eigi sje hún eld-
fjall sjálf; hefir sumt runnið frá Dyngjufjöllum og gíg-
unum þar norður af, sumt frá Kollóttu-Dyngju; hraun-
kvísl hefir runnið um hliðið milli Herðubreiðar og Tagla
alveg út að Jökulsá; hraun eru því beggja megin við
Töglin, en sandar að sunnan, og gulgráar vikursljettur
úr gosinu 1875. í Lindabotnunum er byrgi það, er
Fjalla-Eyvindur bjó í einn vetrartíma; það var mjög
Ijelegt, úr hraunhellum, og hrosshryggjarliðir dregnir upp
á tág hafðir fyrir mænirás. Við Lindabotnana eru víða
fagrar brekkur vaxnar lyngi, víðir, hvönn og blágresi.
Hraunin við Herðubreið oru helluhraun með mörgum