Andvari - 01.01.1885, Blaðsíða 183
Um vegagjörð.
177
svari kostnaði, að leggja veginn. Jeg fyrir mitt leyti
er í engum efa um það.
Vegurinn yfir Vaðlalieiði í Eyjafirði.
Þýðing þessa vegar mun einkum sú, að póstleiðin
til Austurlandsins liggur um hann. I?ess utan er liann
einnig verzlunarvegur milli Fnjóskadals og Akureyrar.
Eins og kunnugt er, hefir þegar fyrir all-löngum tíma
verið byrjað að leggja nýjan veg yfir þessa heiði og
er þannig aðalstefnan að nokkru leyti fast ákveðin á
heiðinni vestanverðri. Menn hafa tekið það ráð, að
leggja nýja veginn yfir heiðina norðar en gamla veginn
og er ekki annað liægt að segja, en að það sje fylli-
lega rjett, því þar verður fjallvegurinn lægri. En á
þessum kafla, sem lagður er, er allmikið um bratta
og halla að nauðsynjalausu, enda vill slíkt ávallt verða,
þogar vegarstefnan er ekki afmörkuð fyrir fram með
hallamæli. fess vegna hef jeg mælt hallann á öllum
fjallveginum til Fnjóskadalsár og sett greinilog merki
til þess að afmarka vegarstefnuna. Af því að nýi veg-
urinn liggur all-langa loið í allt aðra átt en gamli veg-
urinn, er ekki hægt að nota neitt af honum við nýja
veginn fyr en boygt er inn á liann aptur. Far sem
nú byrjað er á þessari vegagjörð, má telja áríðandi,
að lienni verði lljótt og vel haldið áfram, að minnsta
kosti þangað til vegirnir eru komnir saman, til þess
að fje það, sem búið er að leggja til nýja vegarins,
eigi liggi lengi svo, að enginn hafi gagn af.
Jeg hef ætlazt á um, að kostnaðurinn við vega-
gjörðina alla leið til Fnjóskadalsár mundi nema 16000
kr. Með þeirri upphæð má gera veginn að minnsta
kosti eins vandaðan og þann kalla hans, sem jeg hef
staðið fyrir, og að öllum líkindum vandaðri.
Milli Akurcyrar og Oddeyrar er fjaran farin nú,
þótt svo sem enginn vegúr liggi þar og þótt, raenn
sjeu farnir hin síðustu árin að hafa vagna. I3egar fióð
Andvari. XI. 12