Andvari - 01.01.1885, Blaðsíða 184
178
Um yegagjörð.
er, er mjög illt að komast þar um, og þegar nú þar
við bætist, að ísjakar liggja í fjörunni, þá er farið
upp á bratta sandhrygginn fyrir ofan fjöruna, og er
örðugt að komast upp á bann. Akureyrarbúar sögðn
líka, að þegar vont væri veður, væri fjarska-erfitt að
komast milli þessara tveggja hluta bæjarins. Nú eru
sumir af Akureyrarbúum farnir að rækta tún út hjá
Oddeyri og flytja’þangað mikinn áburð frá Akureyri;
þykir mönnum því mikið illt, að eigi skuli vera góður
vegur þar á milli. I5að leit líka svo út, sem ýmsir
einstakir menn, er hlut áttu að máli, vildu leggja
töluvert fje fram til þess, að vegur yrði lagður þessa
leið. fað liggur líka í augum uppi, að umferðin milli
þessara tveggja verzlunarstaða er mjög mikil og þar
við bætist umferð úr stóru upphjeraði. Og loks fer
pósturinn þessa leið. Jeg hef sent landshöfðingjanum
áætlun um kostnað við vegagjörð á þessu svæði; eptir
henni ætti að mega leggja hæfilegan akveg milli Akur-
eyrar og Oddeyrar, 2 faðma breiðan, fyrir 4700 kr., og
má það kalla lítið fje, þegar litið er til þess, hve
veguriun er mikilvægur fyrir marga. Hallinn á þossum
nýja vegi er ekki nema eins og 1:30, svo fara mætti
þar með vagna, sem með flutningnum vægju 2640 pd.
(vegna íslenzku hestanna getum vjer sett 1760 pd.), og
geta menu hæglega sjeð, hve mikill hestasparnaður
ynnist við það.
Jeg hef gert ráð fyrir, að vegurinn yrði þannig
lagður, að hlaðin væri úr grjóti, eigi stóru, sú hlið-
in, er að sjónum veit, til varnar gegn sjávargangi og
ís. Að múra hana yrði mjög dýrt, því til þess þyrfti
stórt og gott grjót, sem örðugt er að fá á þessu svæði.
Vera kann, að sumir haldi því fram, að ísrekið sje
svo ákáflegt, að vegargjörð sú, er jeg hef stuugið upp
á, sje eigi nógu rammbyggileg. En úr því að garðar
þeir, sem hlaðnir hafa verið fram með sjónum bæði
fyrir sunnan og norðan Akureyri og sem oru illa gerðir