Andvari - 01.01.1885, Blaðsíða 36
30
Odáðaliraun.
klyfjunum. Seinni hluta dags fóru peir yfir Kverkfjalla-
rana; gekk ferðin þar nijög illa yfir apalhraun og ófærð
af snjó; þegar þeir komu niður úr fjöllunum, fóru að
sjást hjer og hvar grasstrá upp úr snjónum; þeir nálg-
uðust Hvannalindir; einn af hestunum urðu þeir að skilja
þar eptir undir fjöllunum; kl. 10 um kvöldið gryllti í
Lindakeilir og hálfri stund síðar komust þeir í Hvanna-
lindir. Frostið var þar U/20 og hagar allir undir djúp-
um snjó, svo mjög örðugt veitti hestunum að krafsa
eptir grasi. Var það mesta heppni, að þeir skylduliitta
Hvannalindir, því ef svo hefði eigi heppilega viljað til,
var þeim dauðinn vís. Um morguninn 6. júlí var sama
illviðrið og stormurinn jafnvol enn meiri en áður; þeir
gátu náð hestinum aptur, er skilinn hafði verið eptir
kvöldinu áður, en stirt gekk að búa upp á hestana, því
allt var gaddfrosið. Hjeldu þeir nú í norðaustur og klöngr-
uðust við illan leik yfir Kreppu; í henni var snjór og
jakaferð og sandbleytur undir; riðu þeir síðan gegnum
Gæsadal og niður í Fagradal; alstaðar var snjórinn svo
mikill, að hestarnir brutust um 1 ófærðinni; veðrið var
nú orðið því nær ófært og hestarnir svo þreyttir, að eigi
var liægt að koma þeim áfram. Settust þeir því að
neðarlega í Fagradal kl. 6. Þar sást dálítið af víðir-
lauli og grasi upp úr snjónum, og mokuðu þeir dálítið
ofan af fyrir hestana. Ekki varð þeim svefnsamt um
nóttina í tjaldinu, því veðurofsinn var svo mikill; um
morguninn 7. júlí, þegar þeir komu út, lágu 2 hestar
dauðir og helfreðnir fyrir utan tjaldið. Eptir miðjan
dag fór veðrið nokkuð að lægja og fór að rofa til, og
hjeldu þeir þá enn á stað; en lítið höfðu þeir farið, er
bylurinn skall á aptur; komust þeir samt niður í Vest-
urárdal og ^jaðan í Laugarvalladal, og komust loks kl.
1 um morguninn 8. júlí að Brú, efsta bæ á Jökuldal,
mjög þjakaðir og þreyttir, eins og búast mátti við eptir
slíka ferð, og tveir fylgdarmennirnir voru svo veikir, að
þeir urðu að liggja nokkra daga í rúminu. Sigurður