Andvari - 01.01.1885, Blaðsíða 107
Odáðahraun.
101
af Jónsskarði; taka þá við sljettir sandar og síðan
helluhraun alla leið niður í Suðurárbotna. I3egar lijer
er komið sjest ágætlega yfir miðhluta Ódáðahrauns, og
er það eflaust hin stærsta samanhangandi hraunsljetta
hjer á landi; kringja fjöll um hana á alla vegu, nema
að vestan; þar er Frambruni og vestan við hann •>Grjót-
in- upp af Skjálfandafljóti; að sunnan eru Dyngjufjöll,
að austan Herðubreið, Kollótta-Dyngja, Hvammfjöll og
Herðubreiðarfjöll; að norðan Búrfellsfjallgarður, Bláfjall
og Sellandafjall. Hallinn á allri þessari hraunsljettu er
lítill; er hún kölluð Útbruni, og eru þar víðast hellu-
hraun, en Frambruni er úfnari; þó eru liraunin austur
frá við Hvammfjöll og Kollóttu-Dyngju mjög úfin og í
þeim stórir katlar og lautir. Pegar litið er yfir þessi
hraun frá DyngjuQöllum, má glöggt sjá takmörk þeirra.
Frambruni er svartur, en Útbruni gráblár.
Frá Jónsskarði riðum við niður sandana að horni
vestur-fjallanna; þar kemur maður að Frambruna, því
Þar er á honum bugða til austurs; síðan riðum við
helluhraunin fram með Frambruna alla leið niður eptir.
Má vegurinn frá Dyngjufjöllum niður að Svartárkoti
heita ágætur, eptir því sem um er að gera í Ódáða-
hrauni. í Frambruna er töluverður gróður hjer neðra;
hefur sandur vel geta tollað í bollunum og lautunum,
°g í honum eru meltoppar og annar gróður. Jar geng-
Ur fje Bárðdælinga og eru þangað sendir 20 menn í
leitir á hverju hausti. Óvíða eru víst göngur jafn-örð-
ugar eins og í Bárðardal og Mývatnssveit, sem við er
að búast, þar sem fjeð getur hlaupið um allan þennan
hraunageim. Fyrrum var leitað miklu ver en nú, enda
voru heimturnar eptir því. Ódáðahraun er leitað í 3
hokkum. Mývetningar fara upp á Heilagsdal og þar
fram um Útbruna suður og austur af Bláfjallsrana, allt
austur í Hvammfjöll og Fjárhóla, reka síðan fjeð í Suð-
orárbotna og Sellönd; þar er rjett, og þar hittast monn.
Feir 20, sem leita Frambruna, fara fyrst upp á Kol-