Andvari - 01.01.1885, Blaðsíða 164
1B8
Um vegagjörð.
þetta enn betur með tölum. 1 þessu efni hafa mjög
margar tilraunir verið gerðar í ýmsum löndum og eptir
verklegum tilraunuro hafa menn getað sett nokkurn
veginn áreiðanlegar reglur fyrir því, hvernig fá megi
út flutningshæfileik veganna. Nú skulum vjer taka til
dæmis, að leggja eigi veg yfir heiði, eins og opt kem-
ur fyrir á Islandi. Heiðarbrekkurnar beggja megin heið-
arinnar eru mjög brattar, svo ekki tjáir að leggja bein-
an veg upp þær. Gerum nú ráð fyrir, að báðir endar
vegarins iiggi jafn hátt og að heiðin sje 250 föðmum
hærri en endarnir, alveg flöt uppi, og 2500 faðmar á
lengd brúna milli. Ef nú er ákveðið, að halli vegarins
skuli vera í mesta lagi eins og 1 :10, það er með öðr-
um orðum, að vegurinn hækki um 1 faðm á hverjum
10 föðmum, og þessum halla sje haldið allar heiðar-
brekkurnar beggja megin heiðarinnar, þá verður veg-
urinn í hvorum heiðarbrekkunum fyrir sig 2500 faðmar
og allur heiðarvegurinn 7500 faðmar. Sje gert ráð
fyrir, að brattinn verði í mesta lagi eins og 1 : 12,
verður allur heiðarvegurinn 8500 faðmar; þannig verð-
ur vegurinn töluvert lengri þegar hallinn er minni.
Pað er jafnvel sennilegt, að vegagjörðarkostnaður verði
lítið eitt meiri fyrir hvern faðm af þeim vegi, sem
hallaminni er. Vjer getum t. a. m. gert ráð fyrir, að
hver faðmur kosti 3 kr. 80 a., þar sem hallin er Yioi og
4kr., þar sem hallinn er ‘/ía- fannig kostar heiðar-
vegurinn 28500 kr. með hinum fyrnefnda halla og 33500
kr. með hinum síðarnefnda (uppi á heiðinni er gert ráð
fyrir að faðmurinn kosti 3 kr. 80 a.). Sjálfur vegar-
gjörðarkostnaðurinn einn út af fyrir sig yrði þá þeim
mun meiri á hallaminni veginum, að munaði 200 kr.
á ári, sem eru vextirnir, 4%, af kostnaðarmuninum,
5000 krónum.
Ef gætt er nú að, hvað ílutningskostnaðinum líð-
ur, sjest, að 37,6 dagsverk þarf til að flytja 36 smá-