Andvari - 01.01.1885, Blaðsíða 27
Odáðahraun.
21
úr sveitum upp til íjalla. Fjalla-Eyvindur er öllum
tunnur og af honum gengu ótal sögur, en auk þess er
í annálum og öðrum ritum getið um ýmsa seka úti-
leguþjófa, sem ekki urðu eins frægir og eigi fóru jafn-
víða og Eyvindur. Af þessu hafa sögurnar skapazt og
svo hefir hugmyndaflug þjóðarinnar aukið og fegrað og
gjört öræfin, sem enginn þekkti, enn þá ægilegri, með
því að skipa þau tröllauknum fjallabúum, er gátu hulið
byggðir sínar, þegar einhver fór að hnýsast eptir þeim.
Eigi er þess getið í bókum, að fornmenn hafi farið
um Ódáðahraun eða skoðað það, en líklegt er þó, að
byggðarmenn hafi, líkt og á seinni öldum, þekkt út-
jaðra hraunsins, þó eigi sje það fært í letur. Til forna
hafa menn eliaust farið yfir norðurenda hraunsins, þó
eigi hafi sá vegur verið tíðfarinn. Þegar Sámur á Leik-
skálum sótli vígsmálið á hendur Hrafnkeli Freysgoða,
'’ildi hann verða sem fljótastur til alþingis og fór ó-
ranalegan veg. Segir svo í Hrafnkelssögu1: »Hann fer
norður til brúar ok svá yfir brú, ok þaðan yfir Möðru-
dalsheiði, ok váru þeir í Möðrudal um nátt; þaðan
Hðu þeir til Horðibreiðis-tungu, ok svá fyrir ofan Blá-
fjöll, ok þaðan í Króksdal, ok svá suður á Sand, ok
homa ofan í Sauðafell ok þaðan á Þingvöll, ok var þá
Hrafnkell eigi kominn». Hraínkell fór sunnanlands.
Sámur hefir farið yfir Jökulsá hjá Möðrudal; breið
bæðabunga fyrir vestan ána heitir enn Ferjufjall; hefir
þar eflaust einhvern tíma veriö ferja, en þó getur og
Vei'ið, að þá hafi verið þar vað á ánni; síðan hefir
Sámur farið fyrir norðurenda Herðubreiðarfjalla, þaðan
1 Fremri-námur, síðan fyrir sunnan Heilagsdal, fyrir
s»nnan Bláfjall í Suðurárbotna og svo í Króksdal; þar
var þá byggð, gott land og skógi vaxið, en nú er allt
1) Sagan af Hrafnkeli Freysgoöa. Kmhöfn 1847. bls. 12.
Samur fór sömu leiö til baka (bls. 9) og er þar sagt, að sú
ioiö sje eigi almannavegur.