Andvari - 01.01.1885, Blaðsíða 110
104
OdáÓahraun.
vesturs og á henni stór bugða. Eilífur heitir einstakt
fjall norður og austur af Hágöngum; þar er stört vatn
og djúpt, sem heitir eptir fjallinu; þar er grösugt í
kring og beitarland gott. Byggð var hjer til skamms
tíma og hjet bærinn Hlíðarhagi; standa húsin þar enn,
þó að mestu fallin. Við tjölduðum í túninu og höfðu
klárarnir þar nóg að eta. Næsta dag var bjart veður
en hvasst. Kiðum við þá að Dettifossi. Austur af
Eilíii er töluverð urðarbunga, sem kölluð er Grjótháls;
riðum við sunnan í honum; hann er allur úr dóleríti
og suður af honum hefir land sokkið milli eystri og
vestari brekku, sem fyr var getið. jþar eru móar og
víðirland, en hrjóstugra verður, er nær dregur Jök-
ulsá; þar eru ointómar hellur og urðarklappir. Jökulsá
ronnur öll á söndum og er livergi foss í henni fyr en
rjett fyrir ofan Dettifoss; þar er allstór foss, en þó
miklu lægri. Fyrir vestan ána eru leifar af gömlum
farvegi og er grjótið þar allt núið og vatnsbarið. Detti-
foss er efiaust hinn mesti og tignarlegasti foss á Is-
landi. Eptir myndum og lýsingum er Dettifoss mjög
líkur Viotoríufossinum í Zambese í Afríku, þó hann sje
miklu minni. Dettifoss follur þverhn/pt ofan í gljúfur
og er 340 fet á hæð; gilið fyrir neðan, er áin fellur
um, er miklu mjórra en áin fyrir ofan fossinn og fellur
fossinn skáhallt ofan í gljúfrin; fossinn er allur í einni
bunu, þegar vöxtur er í ánni, en annars deilist hann
nokkuð, því þá standa klettar upp úr miðri fossbrún-
inni. Vatnsþunginn er svo mikill, að bergið titrar og
skelfur, og niðri í gljúfrinu er allt í löðri. Vatnið er
þar eins og þykkur reykur og ótal regnbogar glitra í
fossinum og í gufunni og froðunni ncðar í gijúfrinu.
Gljúfrið stefnir frá norðri til suðurs, en 1 því eru mörg
horn og stallar; hefir það líkloga einhvern tíma í fyrnd-
inni myndazt við ógurlega jarðskjálfta; gljúfrin eru
þverhnýpt niður að á, haldast alla leið niður að Ási í
Kelduhverfi og eru um 4 mílur á lengd og 4-—500 fet